Anyways, ég held að ég hafi aldrei á ævinni verið jafn skipulögð, er búin að öllu og er bara að bíða eftir að þriðudagurinn komi! Það var ein sem sagði við mig að hún vildi óska að hún væri jafn skipulögð og ég, og þá fór ég nú bara að hlæja og sagði henni að þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er að takast þetta! T.d í byrjun hverrar annar í skólanum lagði ég ALLTAF upp með að læra jafnt og þétt yfir en stóð ALDREI við það..!
Ég verð að viðurkenna að mér leiðist svolítið, væri alveg til í að hafa aðeins meira fyrir stafni, en kosturinn er þó að ég hef nægan tíma til að hitta vini og vandamenn. Verð reyndar frekar mikið busy yfir helgina, fór í strípur í morgun, svo að passa ÓD og ÞM á eftir, Kolaportið á morgun, ættarmót annað kvöld, passa hund, Kolaportið á sunnudag, dinner með Tinnu minni á sunnudagskvöldið og svo vax og þessi helsta yfirhalning á mánudag. Svo finn ég mér nottla tíma inná milli til að henda mér á æfingar, er t.d með harðsperrur ALLSSTAÐAR núna! Fáránlegt hvað ég fæ alltaf miklar harðsperrur, ennþá eftir að hafa stundað reglulega líkamsrækt í 8 ár..! O_o
Annars er ég orðin ótrúlega spennt yfir að fara, sérstaklega af því að þar er 30 stiga hiti og sól þessa dagana ;-þ Verður notalegt að fá smá sumar! Ég fór með handboltavinkonunum á kaffihús á miðvikudag, og ég held svei mér þá að allir reykvíkingar hafi verið á kaffihúsi á sama tíma! Allavega, þá vorum við að labba á milli kaffihúsa og jesús kristur hvað var kalt!! Við vorum að hlæja að því að það ætti að teljast hásumar hérna, og við skulfum eins og hríslur, það er allavega klárt mál að ef það er eitthvað sem ég mun ekki sakna þá er það veðrið..!
Annars fékk ég símtal í gær, kona sem sagði mér að hún hefði fundið Einstein vælandi fyrir utan hjá sér! :-/ Ég brunaði nottla af stað, fyrir utan að ég tók fyrst vitlausa lykla og læsti mig úti og þurfti að bíða þar til mamma kom heim, en svo brunaði ég af stað og fór inn til þeirra, þá hætti Einstein að væla og labbaði beint til mín. Ég tók hann upp og knúsaði hann í drasl, og fór svo með hann heim til sín. Setti hann niður þar, hann hljóp eitthvað í burtu en kom svo aftur vælandi á eftir mér og elti mig á bílastæðið. Ég knúsaði hann aðeins meira, hann hætti að væla, en svo þurfti ég að fara frá honum :-( Ég var samt skíthrædd fyrst um að það væri búið að keyra á hann aftur eða eitthvað, en svo fór ég að velta fyrir mér hvort að hann sé að átta sig á að mamma hans sé farin, týpískt hann að fatta það 10 dögum seinna..! En ég er nokkuð viss um að það sé ekkert að honum, en það er þó mjög ólíkt honum að vera vælandi, það heyrist varla í þessum kisum mínum, enda bestu kisur í heiminum..! ;-D
Jæja ætla að fara að passa gríslingana mína, later...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli