fimmtudagur, júlí 29, 2010

Síðan síðast...

Mér var farið að leiðast ansi mikið, enda held ég að ég hafi aldrei ekki haft vinnu (reyndar á ég að vera gera þetta blessaða einkaþjálfarapróf þarna, eeeeen það mjatlast áfram), og mér var farið að líða ansi gagnslausri hérna, verandi bara eitthvað að henglsast um á daginn. Þannig að ég spurði nágrannana hvort þau hefðu vinnu handa mér og þau sögðu að ef mig langaði rosa mikið til þá væri illgresi sem þau þyrftu að losna við af engjunum sínum, þannig að ég bauðst til að gera það fyrir þau og að sjálfsögðu þiggja þóknun fyrir :o) Get ekki sagt að síðustu 4 dagar í lífi mínu séu búnir að vera þeir skemmtilegustu í heiminum en ég er að fá ágætis pening, og er úti í sólinni og svo eru þetta risastór helv... þannig að þetta er hellings workout í leiðinni :-þ

Og svo er ég að fara að passa fyrir þau um helgina, hehe talandi um það, ég er sem sagt búin að eignast tvær vinkonur hérna, önnur er 7 ára og hin er hestur. En þessi 7 ára er sem sagt sú sem ég er að fara að passa, hún og 2 ára bróðir hennar, algjör krútt bæði tvö og hún er orkumesta barn sem ég veit! Eins gott að hún býr í sveit..! O_o En já, þannig að ég sit ekki lengur auðum höndum hérna, er líka að fara að þrífa heima hjá einni frænku Hugos af því að þrifkonan hennar er í sumarfríi, ótrúlega góð tilfinning að vera að gera eitthvað gagn og vinna sér inn peninga, þó að það sé við að reyta arfa..! :-þ

Svo er ég farin að keyra ein hérna, leiðir sem ég kann, er samt ennþá að lenda í smá basli með hringtorgin, þau eru nebbla soldið furðuleg! Heima kemur maður alltaf einhevrn veginn beint inní en hérna er það bara ekki endilega þannig! Hux segir kannski:"og svo beygirðu til vinstri á hringtorginu sem er framundan" Og ég bara:"ha hvaða hringtorgi?" Og þá er ég allt í einu bara stödd inn í heilhveitis hringtorginu og Hux með taugakrampa af kvíð í farþegasætinu! Maður fer bara inní hringtorgið á hlið eða eitthvað, ekkert ákveðið mynstur í þessu hjá þeim!! Reyndar er umferðarmenningin hérna svo MIKLU betri en heima, hér er vinstri akreinin hægasta akreinin og það er BARA tekið framúr á hægri akrein og fólk er ekki að hangsa á hægri ef það keyrir hægar en umferðin sem þar fer um. Og já ég er sko farin að keyra á hraðbrautum og allt, keyrði frá Henley til Winchester sem er rúmlega klukkutíma akstur og ég þarf að venja mig á að keyra hraðar! Ég var samt fáránlega góð á hraðbrautinni, krúsaði um á 120 km hraða eins og allir hinir bílarnir :-D

En að vera að læra að keyra svona upp á nýtt með makann sem kennara getur alveg verið álag á sambönd! Hann t.d skilur ekki hvernig ég get bara ekki séð hringtorg og ég skil ekki hvernig hann getur ekki skilið það! (en ég skil samt alveg að hann sé pínu stressaður af því þegar ég fatta ekki að ég sé allt í einu stödd í hringtorgi þá þýðir það að ég hef heldur ekki athugað hvort það sé bíll hreinlega að fara að kreya inní hliðina á okkur..! O_o) En við erum yfirleitt fljót að jafna okkur, smá pirr og svo verður hann rosa stoltur af mér af því að ég er svo flink að keyra :o)

En það sagði svo sem enginn að það væri einfalt að vera í sambandi, það er ýmislegt sem maður þarf að læra að díla við, eins og t.d hver á að vera stóra skeiðin í spúni! (fyrir þá sem vita ekki hvað það er "að spúna" þá er það þegar maður er að kúra og annar liggur fyrir aftan hinn svona eins og skeiðar þar sem önnur skeiðin snýr baki í hina :o)) Anyways, þá finnst honum t.d alveg sanngjarnt að ég sé stóra skeiðin! Ég er bara ekki alveg sammála því, því þegar ég ligg fyrir aftan hann þá sé ég ekki neitt fyrir þessu risabaki hans og þarf einhvern veginn að krækja mig uppá hann, mér finnst það bara miklu rökréttara að ég sé litla skeiðin! Gaurinn er 190 sm á hæð og 115 kg af vöðvum, og ég 170 sm á hæð og rúmlega 60 kg með aðeins minna af vöðvum..! En já, það geta ekki allir dagar verið jólin...

Við skelltum okkur í bíó í gær, í minnsta bíó í heiminum! Það er í Henley og þau skrifa hvaða myndir eru í gangi á krítartöflu fyrir aftan EINA afgreiðslukassann á staðnum! En við fórum að sjá Indeception með Leonardo DiCaprio, hún er ótrúlega góð en þetta er í annað skiptið í röð þar sem við förum í bíó og þurfum að sitja fremst! Meiriháttar þægilegt fyrir hálsinn á manni! Uh já eða ekki, en ég mæli allavega með myndinni :o)

Jæja ætla að halda áfram með þetta blessaða próf mitt svo að ég klári það einhvern tíma á ævinni..! Later....

4 ummæli:

Þórunn systir sagði...

Hugsa til þín á hverjum degti... knús frá Grindavík

Bjarney sagði...

Vá er einmitt búin ad vera thvílíkt ad hugsa til ykkar! Er ad plana hvenaer ég aetla ad koma heim en ég vil vera viss um ad thid verdid á landinu thá! Heyri í ykkur soon..! *kossar og knús tilbaka*

Nafnlaus sagði...

Hahaha... óborganleg að vanda :)

kv/Soffía

Inga Lilý sagði...

Bara snilldin ein, hvernig gengur með prófið? :) Get ímyndað þér að þú sért farin að hlakka til að komast í eigið húsnæði, það er aldrei auðvelt að búa inni á öðrum, sama hversu yndisleg þau eru!

OG ég ætla að leyfa mér að efast um sannleika FB statusins um daginn að þú værir farin að líkja Gauja litla! :) 1.5 kg er EKKERT, bara borða aðeins of mikið kvöldið fyrir vigtun! :P

En gangi þér vel með allt þarna úti, það er svakalega gaman að lesa bloggið þitt.