Dísús, ég þarf að keyra í um hálftíma á leið minni í skólann 4 daga vikunnar, á þessum 30 mín hlusta ég á útvarpið, en ég ætla sko að fara bara að brenna mína eigin diska hér eftir! Þessir morgunþættir sem eru í útvarpinu fá mig stundum til að langa til að taka krappa beygju og keyra á ljósastaur!! Jesús minn hvað þetta er boooooooring! Og hvað sumt fólk (á hnakkastöðvunum) er illa gefið!! Var að hlusta á FM957 í gærkvöldi (þetta er sem sagt ekki eingöngu bundið við morgunþættina!) og þá var gaurinn að fara yfir afmælisdaga fræga fólksins. Hann byrjar að tala um að á morgun (í dag) eigi leikarinn Christopher Reeve afmæli en hann sé, eins og flestir vita ("látinn", hugsaði ég) lamaður fyrir neðan mitti eftir að hann datt af hestbaki, en að hann verði 54 ára á morgun (í dag, eins og áður hefur komið fram;o)) Þetta er í eina skiptið sem mig hefur langað til að hringja inná útvarpsstöð, og það hefði þá bara verið til að eipa á fíbblið! Ef það er einhver sem veit það ekki, þá var Cristopher Reeve lamaður fyrir neðan háls (eftir að hafa dottið af hestbaki, hálfvitinn hafði það allavegna rétt) en hann lést fyrir 1 eða 2 árum!! OK það er eitt að vita þetta ekki, en maður á ekki að tala um hluti sem maður veit ekkert um! Gott ef það var ekki sami gaurinn sem var að hvetja fólk til að fara á "The DaVinci code" því Leonardo DaVinci hafi verið svo magnaður listmálari og því sennilega fróðlegt að sjá mynd um ævi þessa snillings! Ég hef lesið bókina, og hún er minnst um ævi Leonardo DaVinci! Jæja jæja, það geta víst ekki allir verið jafn gáfaðir og ég;oþ
Hehe neinei, ég veit alveg að ég veit ekki mjög mikið (en veit samt alveg smá um suma hluti), en ég hef þó allavegna vit á því að fara ekki í útvarpið og auglýsa fávisku mína!! (geri það bara á veraldarvefnum í staðinn;oþ)
Hey vó, ég lærði EKKERT um helgina:-/ Ég kem mér ekki í að byrja!! Er samt farin að hugsa um það;o) Ég mæti í alla tíma og glósa og svona:o) Jæja ég massa þetta í þessari viku, lofa!!
Well, tíminn að fara að byrja, later...
8 ummæli:
þú ert náttla bara hugsuður ...
ég á fullt af bubbadiskum ef þig langar í !
Ég veit Gulla mín, er ekki kölluð Bjarney "heili" fyrir ekki neitt!!
Jón Páll, sama og þegið...
15-7 :)
Bjarney mín það er ekki bara nóg að vera Massi maður verður að hafa gáfurnar í lagi líka... ;) held að það vanti fleiri heilabú í ættina líka... ;)
Ég er orðin proffi, lærði ótrúlega mikið í gær, og held að ég sé að komast á gott skrið:o) Annars finnst mér að þú eigir bara að sjá um gáfnahliðina og ég einbeiti mér að líkamsræktinni;oþ Eða kannski getum við bara báðar gert bæði;o)
Haha, já ætli manni veitti nokkuð af því að einbeita sér smá að líkamsræktinni... :P haha, ;) held að það sé best að blanda þessu saman... :D
Hey!!
Ég pakkaði þér saman um jólin elskan! Ein svakafljót að gleyma... hehe!
Sorry að ég gat ekki kommentað fyrr... Var í hyttetur með vægast sagt furðulegum Norðmönnum:D hehe!
Skrifa ummæli