laugardagur, september 23, 2006


Vá hvað ég er mikið nörd, er sko að fara að læra! Mjög eðlilegt, á laugardagskvöldi, en þar sem ég er ekki lengur grasekkja þá er mér sko ekki boðið í neitt fótboltalokahóf og get því alveg eins lært! Er samt heavy svekkt yfir að Grindavík hafi fallið, ég vissi ekki að ég gæti tekið fótbolta svona nærri mér! En það liggja nottla miklar taugar til Grindavíkur, þetta sökkar alveg feitt sko:o(

Annars byrjar lærdómurinn svona helvíti vel, ég svaf í 3 tíma áðan og er núna heima hjá mömmu og pabba að blogga! Þetta er samt allt partur af plani sko, þurfti að komast á netið, til að sjá allt draslið sem þarf að læra, og fór því hingað til að laumast inná þráðlausa netið hjá þeim;oþ Ætla svo að koma við í uppáhalds sjoppunni minni í heiminum, sjoppa í Hamraborg með RISA nammibar, og svo heim að leggjast yfir anatómíuna:o)

Helgin búin að vera nokkuð strembin, byrjaði í gærmorgun með því að vinna kl.6, æfa kl.7:30, skóli kl.10, þjálfa frá kl.13-16, mæting kl.17 í Fylkishöll, 2 leikir með 5.flokk, 1 leikur með 4.flokk kl.21, komin heim kl. rúmlega 22, æfing í morgun rúmlega 9, þjálfa kl.11, mætt niðrí framheimili uppúr 12, leikur kl.13, svo fer ég í skvass með Önnu pönnu kl.10 í fyrramálið, þaðan að þjálfa frá 11:30-13, beint niðri framheimili, leikir kl.14 og 16, og svo ætla ég að reyna að massa smá lærdóm með Gullu seinnipartinn, okkur veitir víst ekki af því:-/

Gulla er nú reyndar búin að halda mér á floti hingað til! Keypti handa mér allar skólabækurnar, prentaði út allar glósurnar fyrir mig og keypti meirsegja möppu og raðaði glósunum í aðskilin hólf! Algjör öðlingur þessi manneskja sko! Takk Gulla mín, þúrt snillingur:o) P.s óþarfi samt að láta dýrkunina á mér ganga útí öfgar, hún á sko gallabuxur með B á sitthvorri rasskinninni (sem sagt B og B), og samkvæmt mínum orðabókum þá stendur það fyrir Bjarney Bjarnadóttir, og þegar fólk fer að klína mér á rassinn á sér þá get ég ekki tekið því öðruvísi en sem kynferðislegri áreitni, eða er áreitni e-ð sem maður fílar ekki? Þá er þetta ekki áreitni, mér finnst gaman að fólk setji mig á rassinn á sér:o) (alltaf að lenda í því!)

Annars get ég nú ekki bloggað heilt blogg án þess að minnast á skvassleik sem ég spilaði á fimmtudagskvöldið, ég fékk sms frá Jóni Páli (skólafélaga mínum, sem ég tapaði reyndar fyrir í borðtennis, en ég gat ekki beitt mér að fullu vegna tennisolbogans sem ég hlaut útaf borðtennisiðkun, ég kem sterk inn eftir helgi í þetta ping pong drasl! En já hann var búinn að vera með yfirlýsingar um að RÚSTA már í skvassi! Here is his story!) sms-ið var svohljóðandi:"ég kem niðrí sporthús á eftir, forðaðu þér svo að ég neyðist ekki til að vinna þig í skvassi!" ég hringdi í kauða og tilkynnti honum að við ættum salinn kl.19. Svo ég geri nú stutta sögu langa þá vann ég 10-0 í lotum, þar af 3 lotur 9-0, 3 lotur 9-1, 1 lotu 9-2, eina 9-3 og reyndar eina bara 9-5 þar sem einbeitingin var ekki alveg með mér (wonder why!) en gaman að segja frá því að ég fékk samt alveg heilan svitadropa útúr þessu! Smá ábending hérna (taka bara til sín sem eiga) að stundum er betra að tala minna en gera meira, ekki tala mikið en geta svo EKKERT!! ;oþ

(Óli Þór, þúrt off the hook, þitt tap var ekkert svo slæmt eftir allt saman! ;o))

Farin í nammibúðina og svo að kíkja aðeins á líffærafræðina, later...

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

OK Bjarney, þú varst alltaf að koma við stafina, þannig að þetta var víst kynferðisleg áreitni í hina áttina...en eins og þú nefndir líka... ef maður fílar það, þá er það ekki áreitni!!!

Þannig að ég mæti í buxunum á mánudaginn !!! WAMM BAMM !!!

Úfff núna ferðu að hafa áhyggjur af því að þurfa að vera FÖST með mér í bekk í 3 ár :) mmúúúúhahahahahah

bjarneybje sagði...

Já Gulla mín, það er ekki sniðugt að verða hrifin af bekkjarfélaga! Við erum og verðum bara vinir, manstu, við vorum búnar að ræða þetta! ;oþ

Annars virðumst við báðar með augastað á sama bekkjarfélaganum, þ.e að þúrt heit fyrir boxaranum og ég er heit fyrir að koma ykkur saman! mwuahahahahahhaah
Gulla, þú veist ég elska þig!! ;o)

Nafnlaus sagði...

badmington á morgun - þér verður stútað.

bjarneybje sagði...

Hahahah Jón Páll minn, þú sagðir það sama um skvassið og við vitum öll hvernig það fór!! ;oþ

Nafnlaus sagði...

Þessi nammibúð er algjör snilld :) It's my favorite place ;)

Nafnlaus sagði...

Hlakka til að horfa á badminton keppnina á milli ykkar.. býð mig fram sem dómara í þessari hörkuspennandi keppni í lit !

bjarneybje sagði...

Gulla, þúrt ráðin:o)

Fannar minn, ég vissi alltaf að þú værir vel gefinn;oþ