miðvikudagur, september 13, 2006

löööööng færsla, en ótrúlega skemmtileg!! ;oþ



Vá hvað sökkar að vera ekki með netið heima, þarf að kippa því í lag A.S.A.P! Ætlaði að gera það í dag en ég sá fram á síðasta séns í laaaaaaangan tíma til að leggja mig á miðjum degi þannig að ég fékk mér smá kríu;oþ Fór svo að þjálfa handbolta og svo er meistaraflokksæfing núna frá 20:20-22:00, meiriháttar tímasetning I know, en svona er þetta þegar heilt félag verður húsnæðislaust, það þarf að púsla þessu einhvern veginn saman. Þetta verður einmitt heljarinn púsluspil hjá mér í vetur, t.d núna um helgina er Reykjavíkurmót hjá 4.flokki, undankeppni í unglingaflokki og æfingamót hjá meistaraflokki. Þannig að ef þið sjáið liðið lík á göngu á mánudeginum þá er það mjöööög líklegt að undirrituð sé þar á ferð! Ekki það að ég verði mikið á ferðinni, verð víst að troða inn tíma til að læra þarna í millitíðinni, djöfull sé ég fram á mikið líf í vetur!! En þetta er víst lífið sem ég valdi mér og þetta verður sennilega bara gaman, nú reynir hins vegar heldur betur á skipulagningahæfileikana mína sem hafa hingað til ekki verið uppá marga fiska:-/ Tilhneigist of mikið kenninguna:"að hlutirnir hafi tilhneigingu til að reddast" en það er samt ekki fyrr en ég er búin að taka dramakast og viss um að allt sé að fara til andskotans, en ég skipulegg mig samt ekki betur fyrir vikið, neibb hlutirnir hafa nebbla tilhneigingu til að reddast;oþ

Ég er búin að koma mér ansi vel fyrir í krúttlegu íbúðinni minni, allir velkomnir í kaffi, ég er meirsegja með 2 stóla! Á að vísu eftir að redda eldhúsborði í midget-útgáfu, en ég fer í það mál þegar fjármálin verði komin réttu megin við línuna, og þá ætla ég líka að kaupa mér sjónvarp, þó að mér finnist ég reyndar ekki þurfa þess en það eru allir að segja að mar þurfi að hafa sjónvarp, hópþrýstingur af hæstu gerð! hehe neinei, sjónvarpið er alveg aftast á forgangslistanum, enda veit ég ekki hvar ég á að finna tíma í sjónvarpsgláp. Þarf líka að kaupa eitt skilrúm (ef e-r veit hvar mar getur fengið þannig, bara lítið, þá eru ábendingar vel þegnar) og þá er ég sko vel sett:o) Vildi óska að ég gæti fengið mér kisu líka, en það er ekki pláss fyrir fleiri spendýr en mig á heimilinu eins og staðan er í dag:-/ (setti mynd af sætum hundi af því að Egill er alltaf að hóta mér líkamsmeiðingum (reyndar skeiningum, en það er næstum því það sama) ef ég set fleiri kisumyndir, en þetta er samt ótrúlega krúttilegur hundur:o))

Vó! Var í handbolta í skólanum í gær, eins og ég hef áður sagt þá er það eiginlega jaðarsport að spila með fólki sem kann þetta ekki, t.d í gær þá var kellan eina á auðum sjó í hraðaupphlaupi gaf mér bara minn tíma til að svíííííífa í loftinu (enda með stökkkraft á við meðalstóra kengúru) og svo bara *STRAU*!! Einmitt, kemur frjálsíþróttagarpurinn í bekknum mínum (sem er 190 sm á hæð og 120 kg, og tekur 195 kg í bekk (sem er töluvert meira en Gillz tekur, og sko miklu meira en JP tekur!)) og STRAUJAR mig! Djöfull getur samt kvikindið hlaupið! Reyndar ekki nema ca. 3 skref fyrir hann yfir völlinn, en hann kom sko alveg eins þruma úr heiðskírum sjó. Svo fékk hann heavy móral, var hræddur um að hafa meitt mig en ég hélt nú ekki, tók hann bara haustak undir hendina og gerði svona með hnúanum í hausinn á honum, sá til þess að hann gerir þetta ekki aftur!! hehe einmitt, það mesta sem ég gæti hefnt mín væri kannski að kitla hann í hnésbótina eða eitthvað! Jæja, þetta var bara hressandi;oþ Held samt að ég fái að vera súkkulaði í spili hér eftir...

Farin að gera mig ready í útihlaup, þetta verður ekki nema þriðja æfingin mín í dag, lyfti fyrir skóla (var að þjálfa 6-7 og hafði svo ekkert að gera þar til skólinn byrjaði) svo leikfimi í skólanum þar sem spilað var bandí af miklum eldmóð, blóð, sviti og tár alltaf í þessum leikfimistímum, kylfurnar fengu að fara heeeeeeldur hátt uppí loftið! Og svo úthlaup+handboltaæfing. Hey já, gleymdi að segja frá því að eftir að ég fékk astmapústið mitt er ég að upplifa bara nýtt líf! Núna er bara gaman á æfingum, miklu auðveldara að hlaupa og meirsegja fannst mér skemmtilegt í sprettum í gær! hnénu á mér fannst það ekki jafn gaman, en þetta algjört æði að finnast maður geta bara hlaupið og hlaupið, vá hvað ég hef verið fara á mis við mikið:-/ En betra er seint en aldrei:o)

Vá hvað þetta er löng færsla! later...

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég skil ekki alveg þessa vantrú í minn garð varðandi bekkinn....

ég get allavega lofað þér því að ég slæ golfbolta lengra en þeir, er það ekki nóg fyrir þig?

móðgaði monninn

bjarneybje sagði...

Fyrir mig? Snýst þetta um það? ;oþ
Golfbolti, smolfbolti, þú færð allavegna kredit fyrir að vera ekki búinn að strauja mig..!

Nafnlaus sagði...

Ja hérna ertu að missa þig kelling..... skilrúm held ég í Ikea bara...
kv
Hronnsla

Nafnlaus sagði...

Nóg að gera sé ég! En það er skemmtilegast þannig er þaggi? Og ég sryð þig alveg í sjónvarpsleydinu, það er ekkert nauðsynlegt! Pirr að ég hafi ekki náð að sjá íbúðina þegar ég var á Íslandi, hvaða klúður var það! Hafðu það gott, og ekki missa þig í því að pústa bara asma"dópinu" og æfa eins og brjálæðingur, hlustaðu nú á kroppinn ;)
Kveðja frá Sweden

bjarneybje sagði...

Hehe passa mig á pústinu, lofa;o) En já klárt mál að þú verður að kíkja í krúttíbúðina mína næst þegar þúrt á klakanum:o)

Nafnlaus sagði...

ÁFRAM HK!!!