föstudagur, september 22, 2006

Vá allt í einu kom veturinn! Búið að vera gott veður alla vikuna, nokkuð hlýtt og alles og svo bara búmm allt í einu orðið kalt:-/ Held samt að það sé hlýrra í vesturbænum en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu, bíllinn minn sýndi 4 gráður en 2 gráður hjá kúnnunum mínum. Samt er 4 gráður ekki hlýtt, það er t.d 4 gráða hiti í ísskáp og það er kalt!! Brrrrr, verð að taka fram vetrarflíkurnar...

Dísús, ég held að afgreiðslufólkið í IKEA sé farið að þekkja mig:-/ En núna er líka allt komið sem ég þarf og eiginlega kem ég ekki meiru fyrir, en mér líður ótrúlega vel þarna og ég bíð spennt eftir að einhver þiggi kaffiboðið mitt:o)

Vá hvað ég nenni ekki að blogga, farin á færibandið, later...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er til í kaffi hvenær sem er :)

bjarneybje sagði...

Jamm, verður að fara að kíkja á kelluna! Ég skal meirsegja bara bjóða þér í mat, taka mig til og ELDA!! ;oþ

Eina vandamálið sem ég sé, þar sem við erum báðar frekar busy í lífinu, er kannski að finna tíma þar sem báðar komast í einu! En við finnum e-ð útúr því:o)