Vá hvað ég á mikið af drasli!!! Er að reyna að pakka niður, ætlaði upphaflega að flytja í dag en sé ekki alveg fram á að það geti orðið að veruleika:-/ Fékk nýju þvottavélina mína áðan:oD Hún var flutt bara beint á Grenimelin, þarf bara að fá einhverja jötna til að hjálpa mér að koma henni á réttan stað! ;oþ Það er svo sem hæg heimatökin þar, kynntist þeim ófáum á árunum í Gym80 á sínum tíma, og svo eru nottla nokkrir massar í Sporthúsinu, ætli það endi samt ekki með því að pabbi hjálpi mér, já það eru forréttindi að eiga besta pabbann í heiminum:o)
Einbeitingin í pökkuninni er búin að vera alveg lömuð, er t.d í smá hálfleik núna, ákvað að taka smá bloggpásu;o)
Byrjaði samt daginn af krafti, skellti mér í spinning, 75 mín tími, ég var einhvern tímann búin að minnast á að ég var að greinast með astma, og hann er víst mjög slæmur, þannig að ég þarf að pústa mig alltaf 2x á dag, og svo aukalega á æfingum ef mér finnst ég þurfa þess. Ég fór fyrst í e-ð blási-próf og venjulegt fólk á að ná 100% (skv. e-m staðli) en íþróttastelpur á mínum aldri og í "mínu" (forminu sem ég ætti að vera í m.v allar æfingarnar) formi eru að ná upp undir 120%, ég náði 68%. Hjúkkan ætlaði ekki að trúa því, hún æfir í sporthúsinu og var með mér í fjallgöngu í sumar, og hún sagði að ef ég væri ekki búin að þrjóskast svona áfram síðustu árin þá væri ég í MJÖG slæmum málum. Ekki það að ég sé í toppmálum í dag, en er í mjög góðum málum m.v ástandið. ANyways, ég fékk pústið mitt í gær og eruði að grínast með muninn!! Ég fór í spinning í morgun, púlsinn rauk ekki uppí 200 eins og oftast, heldur var bara í 150-70, ég var ekki eldrauð í framan og ég var ekki að kafna. Núna hlakka ég bara til að fara út að hlaupa og sjá hvort ég finni mun þar:o) Er að reyna að forðast að hugsa um hvernig íþrótta"ferillinn" hefði farið ef þetta hefði uppgötvast þegar ég var krakki/unglingur (er sennilega búin að vera með þetta nánast alltaf, lærði bara einhvern veginn að lifa með því, taldi mér bara trú að þetta væri aumingjaskapur að komast aldrei í toppform, skildi reyndar aldrei af hverju ég væri stöðugt þreytt/syfjuð, en núna veit ég af hverju;o))
Jæja nenni ekki að vera með sífelldar sjúkrasögur hérna, vona að þetta sé sú síðasta! Vonum að pústið mitt bindi enda á allar rauninr mínar;o)
Enda á einni Óskars Dags sögu;o)
Eins og flestir, sem lesa bloggið mitt vita, þá er það litli 6 ára frændi minn. Hann kom í heimsókn í gær og haldiði að litla gerpið sé ekki byrjað að lesa! En já það er ekki sagan, hann kom e-ð fyrir aftan mig og byrjaði að kýla mig í rassinn (mjög eðlilegt, ég veit) og ég segi við hann að hann geti alveg eins kýlt í vegginn, álíka harður! Hehe ekkert ofmat í gangi;oþ en honum fannst þetta voða sniðugt og kom reglulega til að kýla mig í rassinn, og sýndi m.a mömmu sinni nýja boxpúðann sinn. Svo hringdi pabbi hans áðan og sagði mér að gerpið hefði tilkynnt honum að hann hefði verið að kýla mig í rassinn, pabbi hans savarði að það væri nú ekki mjög erfitt þar sem ég væri með svo stórann rass! Þá sagði litla dýrið:"Nei, hann er nú ekkert stór, bara ótrúlega harður!" hahaha er það skrýtið að maður elski þessi kvikindi útaf lífinu??
Farin aftur að pakka, later kids...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli