Djöfull er ég að brillera í skólanum! *hóst* Vorum um daginn í áfanga sem heitir Rannsóknir og vinnubrögð, kennarinn byrjaði að tala um eitthvað APA system, ég segi (soldið hátt óvart:-/):"ha! Apa system? hvað er það nú eiginlega?" Gulla byrjar að hlæja og ætlar að reyna að segja mér að við eigum að vera búin að lesa þetta en á meðan rétti ég upp hönd til að svala forvitni minni, Gulla byrjar að hlæja enn meir en nær að troða því útúr sér að við eigum að vita þetta, kennarinn spyr mig hvað ég ætli að spyrja en ég sagði að ég hefði verið búin að gleyma að ég var víst búin að lesa þetta heima, hún keypti það ekki alveg og útskýrði fyrir hvað APA stæði (skammstöfun fyrir:"American Psychological Association") , þá sagði ég:"jaaaá, hlaut e-ð að vera, ég var einmitt að spá í af hverju þú værir að blanda öpum inní þetta" Svo fattaði ég að ég hefði actually sagt þetta upphátt og ég og Gulla lágum í hláturskasti eins og við værum 5 ára:-/ Ég reyndi að telja Gullu trú um að kennarinn hafi trúað mér að ég hefði verið búin að læra heima, en Gulla vill meina að hún hafi séð í gegnum þetta hjá mér, ég ætla að leyfa mér að njóta vafans...
Svo vann ég enn eina vinsældakeppnina í gær, núna í bekknum mínum. Það var verið að ræða kynferði og íþróttir og svo komu myndir af vaxtarræktarkonum og allir bara"oj þetta er ógeðslegt" og eitthvað, og þá sagði ég"sko, þær eru ekkert endilega að þessu af því að þeim finnst þetta geðveikt flott, þetta er bara ákveðinn strúktúr með líkamann og vinna með ákveðna líkamsparta og reyna að uppfylla ákveðna staðla, t.d eru kúluvarparar frekar "ógeðslegir" (ef vaxtarræktarfólk er ógeðslegt) í vextinum en þeir eru bara að reyna að gera allt til að kasta kúlunni aðeins lengra, og borða þ.a.l kannski meira en góðu hófi gegnir" Þá segir kennarinn" æi nú verður Óðinn sár" og bekkurinn sturlast úr hlátri þar sem þessi Óðinn, bekkjarfélagi minn er KÚLUVARPARI! Ég reyndi að draga úr skaðanum með því að segja þeim að ég var að meina kvenkyns kúluvarpara, þeir eru oft frekar grós, kallarnir eru miklu oftar massaðir en ekki bara feitir! Þarf að knúsa Óðinn á eftir og reyna að komast í mjúkinn hjá honum aftur:-/ Ég var samt í alvörunni að tala um kvenkyns kúluvarpara..!
Ég var að spá, nú segja margir að fegurðin komi að innan, ætli það geti verið að ég hafi fæðst á röngunni?? ég var bara að pæla...
7 ummæli:
Þú ert náttúrulega bara endalaust að sýna hvað þú getur troðið löppinni á þér upp í munninn á sjálfri þér :)
HAHAHA :) Snilld! En hey! Hvernig væri nú að við færum að taka æfingu saman.. huuummm... :)
ég held að öll þín fegurð sé að innan því þú ert forljót að innan í mínum augum eftir atburði kvöldsins gamla :)
þarna átti að sjálfsögðu að standa að fegurð þín væri úthverf! ég mun vinna þig í skvassi eftir mánuð, það er á hreinu.
Jón Páll, ég er ekki ljót að innan þó ég hafi unnið þig 10-0 í lotum, þar af 3 lotur sem fóru 9-0 og hinar 9-1 og 9-2! Það er ekki mér að kenna þó þú sökkir í skvassi! En jájá gefðu þessu mánuð, þá nærðu kannski að skora 3 stig í einhverri lotunni;oþ
Tinna mín, verðum klárlega að fara að massast eitthvað saman:o)
Fannar, er ég með löpp í munninum??
Þessi viðsnúningur á ensku máltæki var greinilega ekki að heppnast :)
Róleg, ég skoraði 5 í einni lotunni.
Skrifa ummæli