laugardagur, nóvember 18, 2006

Dísús, ég sem ætlaði bara að vera í chillinu með FH-b er í hóp hjá aðalliðinu á eftir! Erum að fara að spila við Hauka að Ásvöllum, best að byrja bara á derby slagnum! Og ekki nóg með það þá er það sjónvarpsleikur!! Veit nú ekki hvort ég komi til með að spila e-ð en það er alltaf gaman að taka þátt í þessu, upphitun, skjóta í hálfleik og sonna;oþ Vona bara að ég lendi ekki í því sama og í b-liðs leiknum á þriðjudag! Núna er ég sem sagt skinnlaus á 3 puttum, þannig að ég er með second-skin plástra og teipa svo yfir, í leiknum á þriðjudag þá var ég einmitt með teip á puttunum, og teipið losnaði akkúrat í miðju uppstökki hjá mér og skotið endaði ca. 13 metra yfir markinu, ok kannski 2 metra yfir en það var samt asnalegt! Krossa fingur og vona að það gerist ekki í beinni!! :-/ hehe


Eftir leikinn bruna ég svo beint í afmælið hjá Andra, litla snillingnum mínum (setti aðra mynd af því að mér finnst hún svo krúttileg, hann er mesta krútt í heimi sko!)



Jæja ætla að fara að gera mig klára fyrir leikinn, mæting kl.13, sendið mér happy thoughts!! :o) later...

Engin ummæli: