mánudagur, nóvember 06, 2006

Ég er alveg að gefast uppá þessu blogspot-dæmi, búin að reyna að blogga alla helgina en færslurnar detta alltaf út! Veit ekki hvort þetta hafi e-ð með tölvuna mína að gera, en færslurnar save-ast ef ég blogga á bloggar.is, er alvarlega farin að íhuga að flytja mig!!

Annars var ég að spila með 4.flokkinn minn í gær, er að drepast í hálsinum:-/ Þarf að fara að reyna að róa mig niður á leikjum, ég lifi mig fullmikið inní þetta!! Hins vegar var hinn þjálfarinn alveg steiktur, ég ÞOLI EKKI hvað leyfð eru gróf brot í þessum yngri flokkum, þvílíkt leyft að rífa aftan í og fleira sem væri ALDREI leyft í meistaraflokki! Svo kallaði ég á dómarann í gær að taka á því þegar verið var að rífa aftan í, þetta er stórhættulegt fyrir þessa krakka! (meira að segja hangið í hálsinum á einni og ekkert dæmt!) og eftir það byrjaði hinn þjálfarinn að kalla hvað eftir annað:”hættið að rífa aftan í, það er stórhættulegt” í hæðnistón og stelpurnar hans hlógu að honum. Prinsipp regla númer eitt er að reyna ekki að niðurlægja andstæðinginn og var í rauninni bara meira niðurlægjandi fyrir hann, sérstaklega þar sem ég vann leikinn, þrátt fyrir að vera með 4 byrjunarliðsmenn úr 5.flokki og 3 af yngra ári í 4. Held að hann ætti frekar að einbeita sér að því að læra að vera hæfur þjálfari, heldur en að reyna að vera fyndinn á kostnað mótherja...

Ég og Hafrún á Borat á föstudag, hún er mjöööög fyndin! Mæli alveg með henni, er meirsegja að spá í að fara aftur með handboltastelpunum mínum:o)

Svo er ég búin að komast að því að 7.flokkurinn minn samanstendur af snillingum, þeim finnst ég t.d GEÐVEIKT góð í handbolta! Ég var að kenna þeim nokkur trix, og þeir horfðu á mig og svo spurði einn:”Vó hvernig geturðu þetta eiginlega?? Ertu ekki að spila geðveikt mikið með meistaraflokki?” hahaha (ég setti einmitt myndina með svo að þið getið séð hvernig ég lít út í valsbúningi (að vísu varabúningurinn) og hvernig liðið myndi líta út með mig innaborðs;o)) hey reynið að finna mig;o)
Gaman að þjálfa þennan aldur, gott fyrir sjálfstraustið hjá manni;oþ Handboltastelpurnar mínar eru orðnar svo gamlar að þær eru farnar að átta sig á því að ég sé kannski ekkert svo mikil hetja eftir allt saman!! Man ennþá eftir kommenti frá einni fyrir 2 árum þegar ég var að svara einni spurningu, þá sagði hún:”vá þú veist ALLT!” Það má geta þess að þessi iðkandi er enn í miklu uppáhaldi hjá mér! ;o) En ég sagði henni nú samt að ég veit sko ekkert ALLT, þó ég viti sko óóóóóóóóóóótrúlega mikið! ;oþ hehe
En þessir krakkar eru ótrúlega frábærir, ég gæti t.d verið að einkaþjálfa fyrir sennilega um 4x hærri laun, en barna-og unglingaþjálfun gefur manni eitthvað sem mun aldrei vera hægt að mæla í peningum, (jájá ég veit ég er væmin;o))

Ég fór loks að láta kíkja á ökklann á mér, hann er nebbla ennþá asnalega bólginn, og smá verkir. Sem er kannski ekki skrýtið þar sem mér hefur sennilega tekist að slíta liðband/bönd í ökklanum, sem útskýrir af hverju ökklinn er ennþá jafn þrútinn og á ólettri konu! En læknirinn sagði mér að tala við bæklunarlækni (ég á nú eiginlega bara minn eigin, tala við hann, hann verður sennilega mjög ánægður að sjá mig aftur;oþ) uppá hvort hann vilji ráðast í það að tjasla þeim saman. Vúhú!! Af hverju get ég aldrei bara fengið svona venjuleg meiðsli, smá tognanir, marbletti og sonna? Ætli ég taki þetta bara ekki eins og flest annað, annaðhvort geri ég það almennilega eða sleppi því bara;oþ En ég er ekki brotin, þannig að ég má byrja að hlaupa og sonna:o) Held ég, passaði mig bara á því að spyrja ekki, held allavegna að ég sé ekkert að skemma neitt. Það er samt vesen ef ég misstíg mig, hef þá engin liðbönd til að halda við ökklann:-/ En ég fer varlega, as always;o)

Vó nóg í bili, later...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bjarney for what it is worth þá ert þú MANNVITSBREKKA í mínum huga :)

bjarneybje sagði...

heheh takk takk, means a lot!! ;oþ

Nafnlaus sagði...

ooog þú ert önnur frá hægri í aftari röðinni :)

bjarneybje sagði...

Dugleg stelpa:o)