þriðjudagur, nóvember 28, 2006

fyrirsögn

Hey ég fór í eitthvað svona mælitæki í gær til að mæla hæð og þyngd og þar stóð að ég væri 171 sentimetrar á hæð! Ég ætla ALDREI að láta hæðarmæla mig aftur! Ég er ekkert smá hamingjusöm yfir að vera 171 sm :oD

Humm oh ég var með fullt til að blogga um en man ekki neitt núna:-/ Ætti að vera að læra en er að fara að spila handboltaleik með FH-b núna kl.21 þannig að það tekur því nú varla að byrja;oþ en ég hlakka þvílíkt til, alltof langt síðan ég hef komist í tæri við harpix!! Ákvað líka að fara að keppa því þá er maður hyper langt fram á kvöld og ég þarf á því að halda þar sem það er próf hjá mér kl.9 í fyrramálið, fyrsta prófið mitt. Var að fá fyrstu vetrareinkunnina mína, fékk 8 sem ég er bara mjög sátt við þar sem ég bjóst við töluvert lakari einkunn:-/ En það er kannski ekki að marka áhyggjusjúklinginn mig, býst yfirleitt við því versta:-/ En ég er að reyna að bæta mig!! :o)

Oh dísus man ekkert af öllu því sem ég ætlaði að blogga um! Þarf að fara að skrifa þetta niður jafnóðum svo að ég geti komið þessu öllu til skila! Er viss um að lesendur síðunnar bíða með öndina í hálsinum eftir næstu færslu frá mér!! Heheh ok sennilega ekki, en samt fúlt að vera búinn að ákveða að blogga um e-ð sem manni finnst gegt merkilegt en svo gleymir mar því, sökk:-/

Jæja farin að keppa, bjóst aldrei við því að segja þetta EN áfram FH!! ;o)

Bjarney, þessi hávaxna (171 sm!! :o)) kveður að sinni....

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Glætan að þú sért 171, þá er ég 190, það er ljóst!!!
Kv, Orri

bjarneybje sagði...

Hey ég á miða sem sannar það að ég er 171 sm!!!!! þannig að þú my friend ert 190 sm, það er klárt mál:o)

Nafnlaus sagði...

varstu ekki bara í skóm? Sem þýðir að þú ert svona 167 :)

bjarneybje sagði...

neibb passaði mig einmitt á því að fara úr þeim til að fá nákvæma mælingu! :o) Enga öfund krakkar mínir þó að þið séuð midgets;oþ

Nafnlaus sagði...

Þannig að þú hefðir slagað hátt í 180 ef þú hefðir verið í skónum??
Mér finnst það ekkert rosalega líklegt;)
Orri sem er 192 samkvæmt þinni mælingu...

Nafnlaus sagði...

Gott að vita að þú rétt sneiðir hjá dvergamörkum :)

Nafnlaus sagði...

Eitt sem ég var að pæla í, var þetta tæli ekki að mæla hæð og ÞYNGD?? Verður næsta blogg þá um þyngdina???

bjarneybje sagði...

hahahah RIGHT!!! ekki það ég hef ekki miklar áhyggjur þó ég uppljóstri þyngdinni, efast bara um að fólk hafi mikinn áhuga á bloggi um það málefni;oþ

Nafnlaus sagði...

hvap ertu mörg hveitikorn? (sjá bls. 3-4, Statistics in kinesiology)

bjarneybje sagði...

heheh þykir leitt að hryggja þig með því að ég er EKKI að lesa þessa bók og mun ekki gera í eitt ár eða svo;oþ en ég vona að þú sért having the time of your life!! ;oþ