Það er ein stelpa sem ég þjálfa líka að æfa fótbolta, og þar ver sú regla að þegar maður kemur frá útlöndum þá gefur maður þjálfaranum sínum Smarties. Hún innleiddi þessa reglu hjá okkur líka (til gaman má geta þess að þessi iðkandi hefur verið í miklu uppáhaldi síðan;oþ) og þær hafa staðið sig með prýði stelpurnar, held að það hafi engin klikkað á þessari reglu (enda vita þær að ef þær klikka þá fá þær ekkert að spila næstu 2-3 mánuði!) og ég fékk smarties áðan, er ótrúlega hamingjusöm með það:o) En geymi það nottla fram að næsta nammidegi *hóst* heheh, en kannski að ég taki það fram að smarties gjafir hafa engin áhrif á það hvort iðkandi komist í uppáhald eða fái ekki að spila! Fannst sagan bara betri þannig;oþ
Ég er að fara á handboltaæfingu með old girls í FH! Þær eru nú samt held ég frekar ungar, en það verður gaman að sprikla aðeins, veit ekkert hvort ég kem til með að spila með þeim í 2.deildinni, en ég ætla allavegna að prófa að mæta á æfingu, væri gaman að spila með Önnu Rut, klára “ferilinn” þannig;oþ
Ég er búin að komast að því að ég er með fáránlega skrýtnar matarvenjur! Ég fæ t.d reglulega “ólífuköst” og þá þarf ég að fá grænar ólífur (fylltar með papriku!), ekkert margar í einu en oft á dag! Og það rifjaðist einnig fyrir mér að ekki alls fyrir löngu var kvöldmaturinn 3 sneiðar af slátri og grænar ólífur, og já sun lolly! Borða nottla ekki oft svona, er oftast í hollum mat, en fyndið samt að fá svona skrýtni matar köst...
Nenniggi meir, þetta var sennilega tilgangslausta blogg í geimi, later...
3 ummæli:
Er það ekki vel við hæfi að þú spilir eins og einn leik svo "börnin" hans Kalla syngi svanasönginn á sama árinu?:)
Ég á samt enn metið í furðulegu mataræði: Hrökkbrauð með sinnepi og vatn...... Toppaðu það.
K-Kov
Það er ekki furðulegt, það er ÓGEÐSLEGT!!! Ég vona samt að ég sé ekki að syngja svanasönginn, allavegna ekki eftir bara einn leik!! ;oþ
Bjarney, þú ert stórfurðuleg á svona góðan hátt :)
Þetta matardæmi er samt alveg í lagi, þetta blandast hvort eð er allt saman þegar þetta er komið niður ;)
Skrifa ummæli