föstudagur, nóvember 17, 2006

Á ekki að byrja í skólanum fyrr en kl.10, en kellan spræk og mætti kl.8:45:o) Er að bíða eftir félaga til að klára enn eitt hópverkefnið, vúhú! Ætlaði reyndar í ræktina í morgun EN þar sem ég fékk tæplega 4 tíma svefn þá ákvað ég að sleppa því:-/ Set símann minn alltaf á silent á nóttunni, nema í nótt og guess what, fékk svona “óvart” símtal, þar sem viðkomandi hringir óvart, maður svarar en heyrir bara læti hinum megin á línunni. Meiriháttar gaman, sérstaklega þegar maður er andvaka í 2 tíma í eftir:-/ Sé heldur ekki fram á að komast heim fyrr en um kl.23 í kvöld þannig að dagurinn leggst svona helvíti vel í mig! Hehe vá hvað hlýtur að vera gaman að lesa svona grumpster blogg á föstudagsmorgni!! ;oþ

Fer á handboltaæfingu í kvöld, hlakka til:o) Nema að ég er skinnlaus á 2 puttum, en siggið hlýtur að fara að láta sjá sig! Hlakka til að geta spilað bæði second skin og teip-laus!!

Svo er afmælisveisla hjá Andra snúð (hann er algjör snúður sko;o)) á morgun (lengst til vinstri á mynd) á morgun, gerpið að verða 5 ára! Vá hvað tíminn er fljótur að líða! En það verður gaman að fara í veisluna, slæ hendinni aldrei á móti kökum og að fíflast með gríslingunum frændum mínum;oþ En veit ekki hversu lengi ég get stoppað, ætli ég þurfi ekki að mæta í verkefnavinnu á morgun og svo þarf ég að læra undir próf í líffærafræði á mánudag. Þarf í millitíðinni að fara á Selfoss á sunnudag með 4.flokkinn minn að keppa, hver fagnar því ekki?? ;o)

Nenniggi meir, það er e-ð helv... grump í mér:-/ Er alveg ómöguleg ef ég fæ ekki svefn eins og ungabarn! Ég hlakka ekkert smá til að komast í jólafrí og get sofið út eins og 1-2 daga:o)

Later, grumpster out...

Engin ummæli: