sunnudagur, nóvember 19, 2006

Nörd??

Já ég held að ég verði að teljast yfirnörd! Er í hópverkefni núna og það sem er erfiðast við hópverkefni er að finna tíma til að hittast! Þegar maður er skussinn í hópnum, þ.e ef maður er busy á öðrum vígstöðvum þá veldur það manni gríðarlegri sálarkvöl og samviskubiti yfir að leggja meiri vinnu á hina:-/ Arnar (hitt yfirnördið, er með mér í hóp) ákvað að fara uppí skóla um kl.23:00 í gærkvöldi til að vinna í verkefninu og ég hafði ekki samvisku í að fara ekki líka (við erum 3 saman og sá þriðji er búinn að gera mest!) við vorum rosa dugleg, gerðum soldið mikið og vorum að til kl.2:30 í nótt. Mjög eðlilegt við vorum 3 manneskjur í öllum skólanum, kannski ekki skrýtið þar sem það var jú laugardagskvöld!! Það var samt heavy notalegt að labba út og að labba í götunni minni þegar ég kom heim, allt svo bjart útaf öllum snjónum og geðveikt hljóðlátt. Ef ég myndi jaðra við að vera rómantísk manneskja þá hefði mér fundist þetta mjög rómó. En þar sem ég er ekki rómantísk þá ákvað ég bara að taka lúku af snjó og borða hann, elskaði sko snjó þegar ég var lítil, borðaði hann stöðugt þar til ég tók snjó af handriði og fékk munnbita af fuglakúki í leiðinni, eftir það varð ég heldur skeptískari á snjóát...

Átti svo að fara að þjálfa kl.10 í morgun, fór út rúmlega 9:30 og litli Aygo-inn minn var eins og lítill snjóbolti. Ég byrjaði nottla að ryðja snjónum af og þá kemur eldri kona að mér, ég býð góðan daginn og hún byrjar e-ð að spjalla, svo tekur hún upp myndavél og byrjar að taka myndir af mér! Ég var að spá í að segja við hana:”hey fólk er að borga morðfjár fyrir að fá að taka myndir af mér, heldurðu að þú fáir þetta bara frítt??” en hún var svo indæl að ég ákvað að veit henni þá gleði að fá að eiga myndir af mér, enda fátt sem gleður augað meira en ég, nývöknuð að moka snjó að bílnum mínum! ;oþ En hversu steikt er það samt að vera á ferli á sunnudagsmorgnum að taka myndir af blásaklausum, mygluðum, ungum (víst!) stúlkum að skafa bílinn sinn?? Fyrir utan það að ég skildi ekkert hvað hún var að segja:-/
Reyndar hef ég einn eiginleika sem fer afskaplega í taugarnar á fyrrverandi konunni minni (hún dömpaði mér vegna óleysanlegs ágreinings, við vorum ósammála um hversu mikið líkamlegt samneyti ætti að eiga sér stað í sambandinu, ég dró mörkin við augngotur en hún vildi víst eitthvað meira! Djöss frekjan vildi high five og eitthvað!! Ooooj..!) en já eiginleikinn er sá að ég segi já og svara ef verið er að tala við mig, en í rauninni er ég ekkert að hlusta á viðkomandi! Lendi stundum í því að Gulla er kannski að tala við mig og samræðurnar búnar að vara í einhvern tíma, og ég svara á réttum stöðum, svo spyr hún mig eitthvað og þá kemur:”bíddu ha, hvað varstu að segja?” og þá hef ég ekki heyrt orð af því sem hún sagði:-/ Held reyndar að þetta sé eiginleiki sem ég tileinkaði mér á sambýlinu þannig að ég dett bara alltaf í þann gír þegar ég umgengst þroskahamlað fólk, hlýtur eiginlega að vera skýringin...

Hey vá hvað ég er að gera stutta sögu langa! Anyways, æfingin sem ég átti að mæta á féll niður þar sem húsvörðurinn var fastur uppí Breiðholti! Fékk fyrst að vita að það yrði einhver seinkun en eftir að hafa beðið í rúmlega 40 mínútur fyrir utan þá fengum við að vita að hún kæmist ekki, einstaklega hressandi samt að vakna svona til einskis á sunnudagsmorgni;o)

Á að fara á Selfoss á eftir með 4.flokk að keppa, er að bíða og sjá hvað verður með færðina, tökum enga óþarfa sénsa en versta veðrið á víst að vera verst hérna í Reykjavík, en Heiðin alveg greiðfær, skil samt ef foreldrar eru ekkert æstir í að senda þær. Ekki það að ég sé æst í það sjálf, en sjáum hvað setur ég ætla að hringja aftur um kl.13 og sjá hvort veðrið skáni...

Vá hvað þetta er löng færsla, til hamingju ef þið nenntuð að lesa hana;o)

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þroskahamlað fólk????!!!!!! ætla rétt að vona að þú hafir ætlað að skrifað eitthvað annað .....
annað atriði er að þú svarar yfirleitt bara allt öðru en því sem ég er að tala um..segir ekki: "ha.." heldur bara svarar einhverju bulli ...og mundu að ég tala ekki hratt..þú hugsar hægt !
og high five..hvað er að því ???(ætla að láta einsog ég skilji þetta ekki..) veit ekki betur en að þú sitjir alltaf límd upp við mig í skólanum og sért að laumukáfa á mér ... úff langt svar við km langri færslu :)

Nafnlaus sagði...

Ég hefði alveg viljað sjá svipinn á Bjarneyju þegar hún hefur verið um 16 ára gömul að éta snjótittlingaskít :) :) :)

bjarneybje sagði...

snjótittlingaskítur? er það brundur??

Ég var samt bara 10-11 ára þegar ég borðaði fuglakúkinn, veit nú ekki hvaða fuglategund það var sem skildi hann eftir sig, hef ekki stúderað fuglaúrgang það gaumgæfilega! En vondur var hann kúkurinn, hefur sennilega verið mávur, þeir eru svo óbjóðslegir..!

Nafnlaus sagði...

ég er ekki að skija hvernir er hægt að tengja brund og snjótittlinga saman ..

Hvað þá gríðarlega vatnsstraum úr klemdri slöngu :)

bjarneybje sagði...

snjótyppi=brundur, hvernig er ekki hægt að sjá tenginguna??

Og varðandi þetta með slönguna, hold kjaft ef þú ætlar ekki að eyða næstu nótt heima hjá þér!! ;oþ

Nafnlaus sagði...

hey, ég var í afmæli um helgina... og ákvað að fara að ráðleggingum þínum í áfengismálum og drekka bara vodka :P ekki viss um að það hafi verið sniðugt... :P

bjarneybje sagði...

hahaha sendu mér mail með nánari útskýringum!!!! ;oþ

Nafnlaus sagði...

Haha... svo sem ekkert merkilegt sem gerðist, ég drakk svona 4/5 úr Vodkapela :P og var blindfull :P samt alveg þokkalega róleg held ég eina sem ég gerði var að tala og tala og tala og já tala aðeins meira :P Ég held að það sé ómögulegt að fá mig til að þegja þegar ég er full :P og ég fékk nokkuð oft að heyra "Elsa Rut, við vildum ekki heyra þetta" skil ekkert í því... :P ætli það tengist perraskapnum eitthvað :P
En ég náði nú að halda mér á fótunum svona allavega mest allann tímann ;)

Hætti að drekka svona um 2leytið þannig það var svona að renna af mér um hálf fimm leytið þegar ég rölti heim á leið :P sofnaði svo um 7leytið, og var vakin af systu kl. 10, náði ekkert að sofna aftur þannig kl. 12 dreif ég mig á fætur klæddi mig í útiföt og mokaði bílaplanið og stéttina... helv. hressandi verð ég að segja... fór svo bara í sturtu og fann ekki fyrir þynnku ;)

bjarneybje sagði...

Þá get ég ekki séð af hverju þér finnst þetta ráð ekki gott!! T.d það að finna ekki fyrir þynnku er mjöööög jákvætt;o) Það að tala mikið er ættlægt, en perraskapurinn hlýtur að koma úr hinni ættinni þinni!! ;oþ