
Margt búið að gerast síðan síðast, ég er t.d búin að skrifa undir félagsskipti, formlega orðin FH-ingur, en vil samt taka það fram að það er eingöngu af hentugleikaástæðum! Valur er ekki með lið í 2.deild og ég hef ekki tök á því að æfa á fullu með meistaraflokki þannig að ég ákvað að fara að spila með FH í 2.deildinni, valdi nottla FH af því að Anna Rut er þar, og svo eru líka fleiri frábærar stelpur, eins og Eva Albrechts og Hrönn o.fl. Held þetta verði bara gaman:o)
Var með 7.flokkinn minn að keppa í gær á Vinamóti Víkings, það eru ekki talin mörkin þar sem úrslit eiga ekki að skipta máli í þessum flokki, bara að hafa gaman að þessu, en mínir menn voru alltaf með stöðuna á hreinu og við unnum víst alla leikina. Fyndið samt að vera með þennan aldur, maður er í því að hugga og jafna ágreinig o.fl. Það var t.d mjög fyndið að 2 fóru að rífast og byrjuðu svo að gráta þegar ég var að tala við þá, rosa sorry, nema að annar byrjaði að grípa um hendina á sér og segja "ái" í sífellu. Svo sættust þeir og löbbuðu í burtu, nema að sá sem þóttist vera illt í hendinni stóð upp, hélt um hendina og haltraði í burtu. Ég spurði hann"xxxx, af hverju haltrarðu ef þér er illt í hendinni?" Þá svaraði hann:"ég haltra ekkert, sjáðu ég labba venjulega" og vandaði sig svo geðveikt að labba en dramatíkin varðandi hendina hélt áfram. Hehe þetta eru algjörir snillingar...
Skelli svo inn einni skólasögu þar sem ég er jú annálaður study horse;o) En við í bekknum mínum fórum uppí Læknagarð í líffærafræðitíma að skoða einhverja líkamasparta o.fl Þar var t.d risatórt höfuð (úr plasti sko) sem hægt var að taka líkamspartana af og einn Laddinn í bekknum lét tunguna "sleikja" á mér kinnina. Ég sá mér strax leik á borði, tók tunguna af honum og setti í ca. lífbeinshæð og sagði við samkynhneigðu konuna mína með perrarödd:"Gulla, koddu hérna!" Gulla ældi næstum því úr hlátri, en öðrum bekkjarfélögum fannst þetta ekki fyndið. Svo stuttu síðar var svona líkan af hendi og sáust vöðvar og sonna, nema að langatöngin var töluvert lengri og breiðari en hinir puttarninr, ég tók upp höndina:"Hey Gulla, nýja kærastan þín!" ég og Gulla dóum úr hlátri en það þarf varla að taka það fram að bekkjarfélögum okkar stökk ekki bros á vör. Stuttu síðar ákváðum við að yfrigefa samkvæmið og fórum út með brotið sjálfstraust, fullvissar um að kímnigáfa okkar sé á leikskólastigi, sem er ekki töff þegar maður er í svona þroskuðum bekk..! ;oþ
Læt þetta nægja í bili, ófyndni Laddinn kveður...
8 ummæli:
líka gaman að fá þig í félagið :)
þetta var náttla bara snilld Bjarney...varst næstum því búin að setja saman hina fullkomnnu kærustu fyrir mig...shiiiit hvað þetta var fyndið :) hahaha
Já ég verð nú að kommenta og bjóða þig velkomna í klúbb voran... :)
Ekki laust við að manni stekkur bros á vör af því að mig minnir að þú hafir nú sagt fyrst þegar ég hitti þig að þú myndir aldrei fara í FH og að ég myndi aldrei ná að plata þig þangað, værir það mikill Valsari...;)
Svona breytast hlutirnir víst:D
En sagan þín virkar fyndin, eru þetta engir húmoristar í skólanum hjá þér:D?
Ég efast um að ég hafi sagt að ég væri það mikill valsari að ég myndi ekki skipta (hef spilað með 3 öðrum liðum en Val), frekar að ég væri það lítil FH-ingur að það myndi ekki gerast! ;oþ
Hehe en takk fyrir kveðjuna,og ágætt að einhverjum finnist saga mín fyndin!! ;o)
Það tók rúmlega mámnuð að breyta þessu :) :) :)
Hvað er að gerast með fyrsta árið!!
Haha... þá veit maður hvaðan maður hefur perraskapinn... :D
Elsa Rut, ekki einur sinni reyna að klína því á mig!!! ;oþ
Fer ekki að koma handboltaskýrsla?
Heimurinn bíður með öndina í hálsinum.
K-Kov
Skrifa ummæli