
Vá hvað ég er tóm! Ég, Arnar og Gulla (sjá mynd, ég er þessi stóri guli við hliðina á fötunni) erum uppí HR að reyna að klára hópverkefni. Vorum í gærkvöldi til hálf eitt, þessi hópverkefni eru algjör dauði! Ekki af því að þau eru erfið, heldur af því að það er mesta strögglið að reyna að finna tíma sem hentar öllum! Hefði reyndar aldrei trúað því að ég gæti verið á kvöldin að læra en það er fáránlegt hvað maður á mikla orku þegar maður þarf á henni að halda. Ég verð reyndar kannski í steiktari kantinum, held að Arnari og Gullu hafi t.d ekki fundist ég mjög fyndin í gær:-/ En mér fannst ég mjööööög fyndin, og það er nottla það sem máli skiptir;oþ
Hey ég er byrjuð að geta hlaupið aftur eftir misstigið, fór í leikfimi í gær og var eins og belja að vori:o) Vildi óska að ég hefði verið eins og kálfur að vori, en ég verð víst að feisa sannleikann og átta mig á því að ég hef sennilega verið líkari belju:-/ Ætla að fara að reyna að komast á handboltaæfingar, er farin að sakna þess þvílíkt! Djöfull er handbolti skemmtileg íþrótt! Og mér er alveg sama þó körfuboltafólk, sem stundar íþrótt án snertingar, segi að handbolti sé snerting án íþróttar! Þetta er skemmtilegast íþrótt í geimi:oD
Úff ég er orðin alveg steikt, læt þetta nægja í bili, beljan að vori til out...
4 ummæli:
Hey mér fannst þú víst fyndin, fór bara geðveikt hjá mér að horfa á þig hnykkla vöðvana og biðja fólk að finna vöðvana eða skorurnar..og svo toppaði þetta náttla allt þegar þú byrjaði að kyssa bicep-inn á þér aftur ..var soldið vandræðalegt að sitja þarna með verðandi viðsk.fr. og lög.fr. á næstu borðum og þú í ham :) hahaha en ég lofa, ég mun þroskast og næst ætla ég að hlæja hærra en þú og koma og taka þátt í þessu .. en hey flott mynd, er John Poul litla gula öndin á myndinni ???
Gulla, ég gæti hugsanlega þurft að setja inn kvörtun í fjölmiðla varðandi þig.
Talar um mig sem gúmmíönd, gefur því byr undir báða vængi að ég sé rjómi !!! hvað er málið, ertu abbó :)
hahaha já það mætti sko alveg halda það JP. Enda kannski ekki skrítið..Bjarney er að lúlla hjá þér en ekki mér ...manni gæti auðvitað sárnað :)
En hvað varðar rjóma-dæmið þá áttu alveg sök á því sjálfur!
Memo to you: Ekki skilja Bjarney eftir eina með tölvuna þína ...nema vera búin að hreinsa hana alveg :)
Hey viljið þið tvö ekki bara fá ykkur herbergi or something?? Mér líður bara ekkert eins og ég sé útundan sko..! *andvarp*
Skrifa ummæli