Ég fór í anatómíu-próf (líffærafræði) um daginn og vissi eiginlega ekkert hvernig mér gekk, var alveg með hnút í maganum þegar verið var að afhenda prófin því ég var viss um að ég hefði fengið 2 eða e-ð:-/ En sem betur fer fékk ég 7.7 og held að það hafi verið með hæstu einkunnum í bekknum (ekki bestu bestu, en allavegna topp 10 or something) ég var sko geðveikt ánægð af því að ég er ekki búin að vera að leggja mig jafn mikið fram í skólanum og ég vildi, það var tómt vesen með handboltaþjálfunina í byrjun annar, og svo var ég að rembast við að ætla að æfa full time sjálf, og auðvitað bitnaði þetta allt á skólanum:-/ En eftir að ég forgangsraðaði uppá nýtt þá er ég loksins komin á ágætis skrið í skólanum, en 7.7 er samt ekki ásættanlegt, ekki þegar maður veit að mar getur gert betur...
Á svo að skila einu verkefni á morgun og ritgerð á föstudag, ég ætlaði að nýta helgina GEÐVEIKT vel í lærdóm, en endaði í staðinn á að þjálfa, stjórna handboltaleik, æfa í 2 tíma (lyfti í klukkutíma og skvass í klukkutíma) fara heim, setja í og taka úr 3 þvottavélum, fór út að hlaupa kl.21 á laugardagskvöldið (og þar sem ég er mjög myrkfælin þá hljóp ég bara eftir upplýstum götum, fólk hefur pottþétt hugsað:"hey, þessi er geðveikt eðlileg!") kom svo heim, og til að standa mig örugglega ekki í lærdómnum þá fór ég að spila scrabble frameftir öllu, gaman samt að segja frá því að staðan er 3-0 fyrir mér:oD)
Var reyndar aðeins duglegri á sunnudag, dagurinn byrjaði samt ekki vel þar sem ég vaknaði með sennilega eina verstu magaverki sem ég hef á ævinni fengið:-/ Átti date við Eddu (Garðars) í skvasssalnum kl.9, og þar sem ég meikaði ekki að hún myndi halda að ég væri að beila af því að ég hefði ekki nennt að vakna, þá píndi ég mig niðrí sporthús og reyndi að spila. Eftir 1 og ½ lotu þá neitaði Edda að spila meir við mig og skipaði mér að fara heim, þá var ég orðin kengbogin af verkjum og byrjuð að svitna og skjálfa:-/ Á leiðinni í bílinn fannst mér eins og það væri að líða yfir mig, sem var ekki töff þar sem ég átti að þjálfa handbolta frá 10-13, og það er ekkert geðveikt auðvelt að redda öðrum þjálfara kl.9 á sunnudagsmorgni!! En húsvörðurinn reddaði fyrri æfingunni (með því að standa yfir þeim og leyfa þeim að sprikla aðeins) en svo neyddist ég til að afboða seinni:-/ Það hefur bara ekki gerst síðan ég byrjaði að þjálfa, það var ekki mjög skemmtilegt fyrir samviskuna:o( En jæja, ekki eins og ég hafi getað gert mikið við því, kannski mannlegt að verða veikur af og til:-/
Annars ekki mikið í fréttum, reyndar alveg busy í lífinu en það er bara gaman, og þetta var sennilega ein leiðinlegasta bloggfærsla sem ég hef skrifað, en mér er alveg sama, maður getur ekki alltaf verið GEÐVEIKT fyndinn!! ;oþ
Later...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli