þriðjudagur, október 17, 2006

Grumpster mættur á svæðið...

Það er kannski ágætt að stundum taki færslur uppá því að publishast ekki, ég skrifaði sem sagt færslu í gær þegar ég var í BRJÁLUÐU skapi vægast sagt, en eins og ég segi þá er ágætt að færslan kom ekki inn, allavegna ekki í heild sinni! ;oþ
Málið er nebbla það að ég missteig mig helvíti illa í gær, og núna er fóturinn á mér eins og hlutur úr X-Files:-/ En ég skal leyfa ykkur að fá smá innsýn í hugarástand mitt í gær;o)
Here goes:

“Ég hef aldrei fattað fyrirbæri sem nefnist jafnaðargeð, kannski ekki skrýtið að ég skilji það ekki þar sem ég gæti ekki verið fjær því í minni skapgerð. Ég er oftast í nokkuð góðu skapi, stundum er ég í OF góðu skapi (kallast líka svefngalsi) og þá finnst mér ég t.d mjög fyndin og græt stundum út hlátri, en sá galli er á gjöf njarðar að það finnst engum öðrum ég fyndin:-/ (Nema reyndar Gullu;oþ) En núna er ég sko í fokkings BRJÁLUÐU skapi, tókst nebbla að misstíga mig í skólanum, var að fara í blak en tíminn var ekki einu sinni byrjaður, ég var bara e-ð að fíbblast og tókst að misstíga mig verr en nokkurn tímann á ævinni. Það var ekki að virka vel að vera í hlaupaskóm því ökklinn á mér fór eiginlega í 90 gáður, ég nánast fann ökklakúluna snerta parketið:o( Fokk hvað þetta var vont, ég fékk tár og allt! Langaði reyndar að öskra og fara að hágrenja, en ég reyndi að halda kúlinu eins og ég mögulega gat m.v aðstæður (Gulla vill reyndar meina að það hafi ekki tekist sérlega vel:-/) en vá hvað þetta var vont, og er ennþá. Það sem gerði mig samt brjálaða var að mér fannst allir vera bara e-ð:" ææ missteigstu þig, en ætlarðu ekki að vera með í leikfimi??" Mig langaði að segja (öskra) á einn kennarann:"Ef ég gæti tussast til að vera með þá væri ég með!" (Vona að ég hafi ekki sært blygðunarkennd neins með orðbragðinu:-/) en ég er alveg vön að harka flest af mér, var ekki að fíla að það væri verið að gefa í skyn að þetta væri einhver aumingjaskapur! Ég ætlaði að fara uppá slysó og láta mynda ökklann, bara til öryggis, en svo voru gegt margir þar, og ég fór í enn verra skap, og núna er ég að fara að þjálfa handbolta. Ég er búin að ákveða að það er ekkert að, þjösnast bara á þessu helv... drasli! Fokk hvað mér er samt illt...

Jæja hætt þessu væli, er farin að þjálfa handbolta, grumpster out...”

Humm ég setti reyndar færsluna inn í heild sinni, finnst þetta soldið fyndið svona eftir á. Reyndar finnst mér ekki fyndið að ökklinn á mér er í steik, en fyndið að vera svona reiður yfir því! Ef ég mætti ráða þá væri ég búin með minn meiðslakvóta en það er víst ekki spurt að því, verð bara að bíta á jaxlinn labba þetta úr mér:o)

Farin í skólann, later...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

and Bjarney strikes again ....

Nafnlaus sagði...

When life seems jolly rotten.... there´s something you´ve forgotten...

Batni þér fljótt.

K-kov