föstudagur, október 06, 2006


Smá læripása, maður þarf að fá solleis;oþ hehe tek kannski fulllangar og tíðar pásur, en ég er samt búin að gera soldið "mikið" í dag (miðað við undanfarna daga allavegna!)

Annars hef ég ekki mikið að segja sko, dagarnir fara aðallega í að vera með harðsperrur og samviskubit yfir að vera ekki duglegri að læra:-/ En ég held ég sé að ná að bjarga þessu, eftir smá geðhvarfaköst í dag þá sýnist mér þetta vera að reddast:o)

Dísús, ég verð samt að segja ykkur, ég var að lesa Fréttablaðið í gær (var samt kannski gamalt blað) en þar var verið að ræða um dómsmál, þegar gaurinn í mosfellsbæ kýldi mannin með þeim afleiðingum að maðurinn dó. Á engan hátt fyndin frétt, en guð minn góður, þar var verið að lýsa málsatvikum og það var svo hljóðandi:"Loftur hafði verið í grímupartýi ásamt félögum sínum og var klæddur eins og jólasveinn (mikilvægar upplýsingar sennilega) Hann hafði verið nokkuð æstur þetta kvöld og m.a lent í stympingum við félaga sinn, sem var klæddur eins og gulur kjúklingur." WHAT?? Sem var klæddur eins og GULUR KJÚKLINGUR! Vá eins og þetta var ekki fyndin frétt þá DÓ ég úr hlátri, byrjaði sko að gráta og var að reyna að segja fólki frá þessu en gat það ekki þar sem ég lá bara í krampakasti! Jólasveinn að lemja gulan kjúkling, hljómar ekki eins og lýsing á atburðarrás í manndrápsmáli! Úff ég fer ennþá að hlæja við að hugsa um fáránleikann í þessu...

Jæja ætla að halda áfram með ritgerðina, guli kjúklingurinn kveður...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HAHAHAHA!! Þetta get ég séð fyrir mér:D