
Úff, á morgun ætlum við félagarnir (sjá mynd) að taka fætur sem þýðir að á fimmtudag mun ekki vera einn vöðvaþráður í líkamanum sem er ekki með sperrur! Nú man ég af hverju ég hætti að vera geðveikt dugleg að lyfta hér um árið, var komin með ógeð á að vera með krónískar harðsperrur:-/ En ég vil fá vöðvana mína tilbaka, allavegna þar til ég ákveð næst að stefna á að verða mjó, skipti um skoðun eftir vindátt! En ég hætti þá bara aftur að lyfta ef (þegar) ég skipti um skoðun;oþ
Vó hvað ég er e-ð tóm í hausnum núna, spilar kannski inní að ég geri ekki annað en að æfa, þjálfa og vera í skóla, svo reyndar kemur samkynhneigða kærastan mín í skólann á morgun þannig að ég verð að eyða smá quality time með henni, hehe ok kannski einum of mikill einkahúmor:-/ Ég á ekki samkynhneigða kærustu (þó að hún óski þess, samanber B og B á rasskinnunum! ;oþ) en mér finnst það samt fyndið að þykjast eiga það, hehe dæmi um góðan húmor;oD
Dísús var að fatta að það er nú bara ekki langt í að prófin byrji, fer í fyrsta prófið 29.nóv og búin 12.des, skrýtið að fara í jólafrí (ætla reyndar að taka þá kúnna sem ég get) en ég hef alltaf verið að vinna um jólin, finnst mikilvægt að fólk hreyfi sig þegar það liggur í áti! Ég og Gulla erum núna að fara í læri-átak, uh jájá, annað dæmi um góðan húmor..!
Nenniggi meir, later...
1 ummæli:
þú ert ekki hægt !!!!!! :)
Skrifa ummæli