Nenniggi að tala um "stóra DV málið!" hehe en þetta var mjög fyndið, myndi setja inn textann og myndina ef mér myndi ekki líða þá eins og sjálfumglöðum egóista, þannig að þið verðið bara að kíkja á þetta ef þið viljið sjá þetta;oþ
Ég og Anna Rut erum að fara að keppa í skvassi á eftir!! Fyrsta skvassmótið okkar, og við vorum meirsegja beðnar um að vera með;oþ Var reyndar líka reynt að plata okkur í það síðasta vetur en þá þorði ég allavegna ekki, veit að ég kem sennilega til með að skíttapa en einhvers staðar verður maður að byrja;o) Það vantar fleiri stelpur í sportið og ágætt að byrja núna áður en þessar bestu fara enn lengra framúr manni! Eina takmark mitt er að RÚSTA Gullu, hahahah einmitt það er nú ekki að fara að gerast, ég stefni bara á að tapa ekki of stórt;oþ
Jæja ætla að fara að næra mig fyrir mótið mikla! Wish me luck:o)
5 ummæli:
Bjarney mín..hvað varðar skvassmótið .. bara p.þetta drasl :)
Tek þetta bara á kynþokkanum!! Bwahahahaha ;oþ
Inn með myndina og umsögnina !!!!
Þetta kemur vel út.
Vona að hafi gengið vel í skvassinu.
K-kov
Til hamingju með verðlaunin í skvassinu. Við verðum farin að lifa á skvasstekjunum bráðlega :)
Skrifa ummæli