Ég er mikið að spá í að hætta að taka tölvuna með mér í skólann! Er t.d í tíma núna og þið getið séð hversu mikið ég er að fylgjast með:-/ Er í aðferðafræði sem mér finnst reyndar ekki leiðinlegt en það er allt leiðinlegt ef mar skilur það ekki og ég skil það ekki af því að ég fylgist aldrei með í tímum:-/ Byrja á því á morgun, er ekki að djóka, þarf að fara að girða mig í brók!
Annars er búið að vera þvílíkur dugnaður í gangi. SUMIR sváfu yfir sig á fótaæfinguna en lofar að mæta í fyrramálið;o) Var að spá í að taka átakið mitt alla leið og hætta líka að borða nammi, verða mjó svona í eitt skipti fyrir öll, eeeeeen ég ætla að hugsa það aðeins betur;oþ
Hey við fórum á FH- KF Nörd í gær, það var soldið fyndið:o) Ótrúlega margir sem mættu á svæðið, og soldið sniðugt hvernig þeir gerðu þetta, lokuðu nýju stúkunni og hin var troðin þannig að það mun lúkka fyrir að það hafi verið svo ÓGEÐSLEGA margir á leiknum. Óskar Dagur kom með mér, og Hulda sys sagði mér að hann hefði ekki talað um annað en leikinn þegar hann vaknaði í morgun, greinilegt að hann skemmti sér vel, uppáhalds frænkan að gera gott mót;oþ
Dísús, fór í borðtennis við einn bekkjarfélaga í frímó áðan, mér gekk nú ekki rosa vel til að byrja með og ætlaði aldeilis að fara að koma mér inní leikinn. Ég ætlaði að smassa en á einhvern fáránlegann hátt missti ég spaðann úr höndunum, hann dúndraðist í borðið og skaust að næstu skólastofu, sem er btw með glugga, og ég var eins og fífl þegar ég fór og sótti helvítis spaðann:-/en svo tapaði ég bara rétt svo 21-12 :o)
Jæja ætla að fara að fylgjast með, later....
3 ummæli:
ekki hætta að taka tolvuna í skólann! Við hvern á ég þá að tala við á msn í mínum timum ?
Hei sorry lofa að sofa aldrei yfir mig aftur !!!
ok JP ég skal taka hana með BARA fyrir þig! yes nú hef ég afsökun til að standa ekki við þetta "loforð" ;oþ
Anna mín, sé þig í fyrramálið;o)
Skrifa ummæli