sunnudagur, október 15, 2006

Vá hvað ég hef samt EKKERT að segja, hefur ekki mikið markvert gerst uppá síðkastið. Ég, Gulla og Arnar vorum reyndar heavy dugleg í gærmorgun, vorum mætt rúmlega 8 uppí HR að vinna í hópverkefninu okkar, ég hlýt að fá framfarabikarinn fyrir mestu framfarir á þessari önn! Ég var meirsegja rosa dugleg í verkefninu, þau sögðu mér að fá mér það sama í morgunmat næst þegar við hittumst, ég talaði og þau samþykktu. Heheh eins og ég hef sagt áður, hausinn á mér er ekki bara hattastandur;oþ Gulla reyndar skellti rennblautri tusku í andlitið á mér um daginn með að slengja fram þeirri staðreynd að (annálaði!) kynþokkinn minn nýtist ekki í prófunum, þannig að ég býst við að ég þurfi actually að læra fyrir prófin! :-/ hehe

Hey jú ég get sagt frá skvassmótinu:o) Það er samt eiginlega ekki mikið að segja, ég fékk samt peningaverðlaun;oþ Vil reyndar meina að það séu skammarverðlaun af því að ég var nú ekki að brillera sko:-/ Ef ég hefði e-ð smá vit í kollinum, eða ég hef nottla fullt, en ef ég væri aðeins klókari þá hefði ég mætt í þröngum buxum og flegnum bol og tekið þetta á kynþokkanum;oþ (skv. DV, þetta eru sko ekki mín orð! Hehe) Var nebbla að spila við samkynhneigðu kærustuna mína, og aðra sem spilar líka með “hinu liðinu”, hefði kannski náð að skemma einbeitinguna þeirra! ;oþ
Þessi taktík hefði nú samt sennilega ekki virkað mjög vel á Önnu Rut, en við hefðum þá kannski fengið allavegna 1 áhorfanda! Það var sko ENGINN að horfa á okkur, voru allir bara að horfa á strákana, iss piss:-/ heheh ég var nú samt bara fegin, er ekki alveg tilbúin að láta fólk horfa á mig geta ekkert alveg strax..!

Jæja mér tókst að skrifa soldið mikið um þetta EKKERT sem hefur gerst hjá mér, bíðið spennt eftir færslunni sem kemur þegar eitthvað hefur actually gerst! :Það verður þá sennilega doðrantur fyrst ég næ að gera 2 blaðsíðna ritgerð (fyrir utan heimildaskrá) um EKKERT!

Vona að þið njótið færslunnar börnin góð, drullist svo til að kommenta!

Vá ég er komin í ruglið, fer að detta í háttatíma, æfing í fyrramálið as usual, eins gott að SUMIR mæti;o)

Vó þetta var nú aldeilis skemmtileg færsla um ekkert, hafið það sem allra best lömbin mín:o)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vildi bara commenta esskkann...alltaf gaman að lesa um akkúrat ekki neitt.. það frestar því allavega um nokkrar mínútur að fara að læra :)
kv. Guðrún Drífa

Nafnlaus sagði...

ég hef eiginlega EKKERT að segja núna...nema takk fyrir póstinn, eins gott að þetta var ekki fitumælingablaðið mitt :)

Nafnlaus sagði...

nehh þetta er miklu meira en bara hattastandur ... :)

Begga sagði...

Hæ hæ sexy babe...ákvað að kvitta fyrir innlitið þar sem þú baðst fólk svo "fallega" um það :) :) Hafðu það gott knúsBegga