Dísús ég er aftur orðin félagsskítur:-/ Á laugardag var mér boðið í matarboð, pizzapartý hjá “litlu” handboltastelpunum mínum, bekkjapartý með skólafélögunum og svo partý með meistaraflokkshandboltastelpunum, ég fór í matarboðið og svo heim að sofa!! Var reyndar alveg búin á því, búin að æfa ótrúlega mikið alla vikuna, þar með talið útihlaup á föstudagskvöldið og svo mætt í ræktina kl.8 á lau.morgun. Ég gerði þau mistök að setjast fyrir framan sjónvarp eftir matinn og þá var ekki aftur snúið, ég DÓ! :-/ Er svo reyndar með handboltaæfingar kl.10 á sunnudögum og ég nenni ekki að vera þreytt og illa upplögð þannig að ég tók góðan nætursvefn framyfir félagslíf, lofa samt að standa mig betur næst;o)
Vó ég er að muna það núna að ég ætlaði að hætta að taka tölvuna með í skólann! Án djóks, ég var búin að STEINgleyma því:-/ Jæja sé til á morgun;oþ
Hehe það kom lítið 6 ára gerpi til mín um daginn (nefni engin nöfn, tek tillit til rétts til nafnleyndar;oþ) en hann kom til mín:
”Bjarney, á ég að segja þér?”
Ég:“já, endilega”
gerpi: “Ég er hættur að borða hor”
Ég:”öh já, gott hjá þér!” Hvað getur maður sagt? Það er alveg jafn mikið afrek fyrir 6 ára kvikindi að hætta að borða hor eins og fyrir fullorðna manneskju að hætta að reykja eða e-ð! ;oþ
Jæja ætla að fara að fylgjast með, líffærarfræðin rokkar:o) later...
4 ummæli:
Þú ert ekkert að fara að hætta að taka tölvuna þína. Nú er patti Jóh til dæmis að tala um teygjuæfingar hjá Stjörnunni...halló, þá þarf maður að ræða málin við gelluna hinum megin við vegginn :)
hehe þú getur kannski lært e-ð af patta, fáðu hann til að sýna nokkrar teygjur og reyndu svo að gera eins;oþ en ok þá, skal taka tölvuna með BARA fyrir þig;o)
Nei átt líka að taka hana með fyrir mig..manstu..við tölum bara saman í gegnum msn :)
ertu kannski bara búin að gleyma lessu-kærustunni þinni ???? :´(
Auðvitað ekki! Hvernig get ég gleymt hversu mikilla forréttinda ég nýt með því að eiga gagnkynhneigðan kærasta og samkynhneigða kærustu! Humm, en hvar stend ég þá? samgagnhneigð, er það til? ;o)
Hlakka til að sjá þig í skólanum, ´´eg setti okkur saman í verkefni:o) Eigum eftir að rokka;o)
Skrifa ummæli