sunnudagur, október 29, 2006


Þás er ég komin heim eftir Vestmannaeyjaferðina, hérna eru myndir af Herjólfi þegar við vorum á leiðinni til Eyja á fös, vorum meirsegja forsíðufrétt í Fréttablaðinu:oD Heyrði að það hefði verið vesen á'ur en við lögðum að stað frá Þorlákshöfn því einn pabbinn var með veðurstofuna í símanum að reyna að telja skipstjórann á að hætta við að fara, það væri algjört ábyrgðarleysi að fara af stað í þessu veðri með fullan bát af börnum (og mig!) innbyrðis! En við komumst lifandi til eyja en ansi mikil sjóveiki herjaði á farþega! Ég reyndar slapp þar sem FH-ingarnir redduðu mér koju (mér er farið að líka helvíti vel við þessa FH-inga;oþ) og ég náði að sofa mest allan tímann, fór einu sinni á klóstið og varð strax bumbult þannig að þessi koja gerði klárlega gæfumuninn! Ég borgaði svo Önnu minn greiðan með því að bjóða henni uppá rúm á bakaleiðinni;o)

En ferðin var frábær í alla staði, A-liðið mitt náði 3.sætinu eftir nokkra hörkuleiki (8 leikir á 1 og 1/2 sólarhring er helvíti strembið) og B-liðið fær framfara-verðlaunin, þetta eru allt algjörar hetjur og topp eintök af mannverum, það er á svona stundum sem maður man af hverju maður stendur í þessari þjálfun:o)

Hey já, ég fékk 7.5 fyrir heimildaritgerðina sem ég hélt ég myndi fá max 4 fyrir, djöfull er kellan að rúlla þessu upp;oþ Öh svo var e-ð annað gegt merkilegt sem ég ætlaði að segja frá fyrir helgi, en ég man ekkert hvað það, þannig að það hefur þá sennilega ekki verið mjög merkilegt!

Nenniggi meir, ætla að fara að lúlla soon, vona að ég geti sofnað, náði svo helvíti fínum lúr í Herjólfi á leiðinni heim:o) Ekki eðlilega þægilegt að sofna í smá öldugangi, elska það sko!

Later...

Engin ummæli: