Þetta var víst 7.flokkur karla sem ég var með í gær, smá þolinmæðisvinna en ég væri sko alveg til í þetta! Shit hvað það var fyndið, 4. og 5.flokkurinn minn kom svo strax á eftir og á meðan þær voru að hita upp þá hringdi ég í Tinnu vinkonu. Ég var að ræða það þegar þjálfarar hafa ekki aga á krökkunum og leyfa þeim að komast upp með of mikið, og hugsaði með sjálfri mér að þetta væri af því að þjálfurum skortir sjálfstraust, eru hræddir við að vera taldir leiðinlegir, eða fá einhverja foreldra á bakið o.s.frv. Á sömu sekúndu og þetta flaug í gegnum huga mér þá er brotið á einni stelpunni (þær voru í körfubolta sem upphitunarleik) og í staðinn fyrir að kalla fríkast, þá öskraði ég:"SJÁLFSTRAUST!" (af því að það var nottla það sem ég var að hugsa á þeirri sekúndu!) svo áttaði ég mig á því sem ég hafði sagt og bókstaflega lympaðist niður af hlátri! Stelpurnar hafa pottþétt hugsað:"hey við erum með geðveikt eðlilegan þjálfara!" Vá hvað þetta var steikt! En það má geta þess að í þessari viku er ég búin að vera mjööööög þreytt og utan við mig, sem gæti verið hluti af útskýringunni,. Eða ég vona það, vona að ég sé ekki bara svona flækt í heilabúinu:-/
Hey ökklinn minn er orðinn frekar grós, ætla að taka mynd af honum á eftir:o) Ég er marin við bæði innan- og utanverða ökklakúluna og langt fram á rist, er svo skringilega bólgin, soldið eins og ólétt kona með bjúg:-/ En ég er að skána, sumar hreyfingar soldið vondar en ég prófaði að skokka pínu áðan og ég gat það án mjög teljandi sársauka (hlaupastíllinn var samt ekki mjög töff!), ætla samt að hvíla allavegna framyfir helgi, reyna að vera skynsöm svona for once...
Er tóm, farin...
6 ummæli:
Flækt í heilabúinu segirðu...
...alls ekki :)
Annað með þennan óléttuökkla, er það ekki bara málið??? Er eitthvað sem þú ert ekki að segja okkur? :)
hahahaha, þetta var náttúrulega OF fyndið! Ég var ekki viss hvort þú værir að leggja svona mikla áherslu á sjálfstraustið hjá þjálfurum eða hvort þér væri bara svona mikið í mun að stelpurnar þínar væru með sjálfstraust ;) hahaha
úff Fannar, nei það er ekki málið og er ekki á stefnuskránni næstu árin! Og ég er fullkomlega sammála þér með að ég sé ekki flækt í heilabúinu;oþ
Tinna, já ertu að grínast þetta var alveg steikt!
Hahaha!!
Eins og þú hefur alltaf sagt:
Maður á alltaf að segja það sem maður er að hugsa!!:D
Alexander K-kov
Það er rosalega erfitt að koma kaldhæðni til skila svona í bundnu máli er það ekki :)
Karvelio kvittar inn
með kaldan haus úr stáli
Þetta kallast,þunnur minn
að þylja í bundnu máli
P.s. Elsku Bjarney, það átti ekki að vera nein kaldhæðni í þessu. Mér fannst þetta bara mjög fyndið:D
Þú hefur kannski fattað það, öfugt við ónefnda "dúllubossa"
LOFA að kommenta ekki meira.
Kveðja,
Alex K-kov
Skrifa ummæli