Þar sem ég á að vera að pakka en langar á æfingu þá ákvað ég að búa til myndaalbúm á netinu! Mjög eðlilegt bara, en ég setti loksins inn myndirnar frá Hvannadalshnjúk ( hér er restin) og Fimmvörðuhálsinum, ágætt að vera búin að koma því frá þar sem ég efast ekki um að myndanna hafi verið beðið með mikilli eftirvæntingu!! ;oþ
Síðasta æf fyrir ferðina í dag, hittumst uppí Heiðmörk í morgun, ég og stelpurnar fórum að skokka en foreldrarnir gerðu grillið klárt og svo var pulsað sig upp eftir hlaupið;o) ekki ég reyndar, er alltaf hálf lystarlítil eftir hlaup þannig að ég fór meirsegja bara tilbaka með nestið mitt:-/ en þetta var rosa gaman og búið að kría ekkert smá mikið út fyrir stelpurnar! Töskur, derhúfur, brúsa, handklæði, ferða-Valsgalla o.fl Þetta verður svaka stuð, ég var einmitt að spá í hvort ég væri nörd að hlakka til að fara út með 13 og 14 ára stelpum! Svarið er sennilega já, ég er nörd! ;oþ
Gleði gleði Portúgal vann, bætir aðeins upp fyrir tapið hjá Argentínu í gær! Ætla svo að fara á eftir að skokka yfir Bra-Fra, það verður pottþétt heavy leikur!
Jæja, ætla að fara að drullast til að pakka, kem sennilega ekki með færslu áður en ég fer út þannig að ég vona að þið hafið það sem allra best og ég vona að sumarið fari að láta sjá sig hérna á klakanum!
Later....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli