
Letin í gær sat aðeins í mér í gærkvöldi þar sem ég náði ekki að sofna fyrr en um miðnætti (sem er mjög seint í mínum heimi:-/) ég vaknaði í morgun um kl.5:10 og þá var sms frá 6-kúnnanum mínum um að hún kæmist ekki. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar þar sem næsti kúnni var ekki fyrr en 7:30 og ég stillti klukkuna 6:45. Svo bara lá ég uppí rúmi án þess að ná að sofna til kl. 5:40 og nennti þá ekki meir og fór bara sjálf í ræktina (var svona hress (sjá mynd)). Náði hálftíma skokki, það var fínt, eiginlega ekki hægt að fa betri byrjun á deginum:o)
Fór svo aftur á Kínastofuna áðan, 3.skiptið og jesús minn hvað þetta er sárt meðan á þessu stendur!! :-O Svo er 4.skiptið á fimttudag og þá verður jurtablandan með BRENNINETLUNUM notuð aftur:-/ Vill einhver segja mér af hverju ég stend í þessu?? Æjá fo%&ings lærpokarnir! ;oþ Ákvað að skella mér í brasilíska vaxið þarna líka, þær nota e-ð súkkulaðivax sem á að vera sársaukaminna og fara betur með húðina, mjög spes. En ef e-r er að spá í hvort ég hafi verið ánægð með þetta þá var þetta mjög ítarlegt vax (þær sem hafa prófað vita hvað ég á við;o)) og mér finnst það jákvætt, fyrst maður er að þessu á annað borð að gera það þá bara almennilega:o)
Keflavík-grindavík í kvöld, ég er búin að kaupa mér GUUUUUULT teppi til að hlýja mér með:o) Mar verður nottla að sýna stuðning í verki!! Eins gott að grindjánarnir tak'etta, nenniggi að horfa á annan jafnteflis eða tapleik! :-/ sérstaklega ekki fyrst maður er að gera sér ferð suður með sjó!
Jæja, var að spá í að segja ykkur frá höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnunni sem ég er búin að vera í, ásamt svæðanuddi, en ég nenni því ekki!
Later...
4 ummæli:
Hæ, mig dreymdi þig í nótt, þú gafst mér risastóran pakka sem var fullur af fötum og handklæðum, mest íþróttagalla sem voru svo stórir að við hefðum komist í þá saman:) En það var ekkert vandamál, þú bara settist við saumavélina og fórst að minnka þá á fullu. Svona er nú mikið stuð á nóttunni hjá mér þegar ég á að heita sofandi:o)
Og hvernig var vaxið ? Sársaukaminna ??
Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því, asnaðist nebbla til að raka í millitíðinni þannig að þá er "fyrsta skiptið" alltaf frekar vont, en hún var mjög fljót að þessu. Maður getur líka farið með minna millibili í þetta vax, þarf ekki að safna jafn mikið;oþ Þannig að ég mæli alveg með þessu...
Bidda mín, alltaf gaman að því þegar fólk dreymir mann;o) Ætli það hafi verið tilviljun að ég hafi verið með íþróttasett í draumnum?? hehe
Mér leiðist allavega ekki á meðan ég sef:)
Skrifa ummæli