mánudagur, júlí 24, 2006


Ég er stundum svo vaaaaangefin (sjá mynd til hliðar for example!) að það er eiginlega ekki með orðum lýsandi! Þeir sem þekkja mig vita að ég hef í gegnum tíðina þjáðst af ólæknandi fitukomplexum, og sennilega margir hrist höfuðið yfir þeim aðferðum sem ég hef reynt til að vinna bug á fitupúkanum! Núna hins vegar er ég hætt! (eftir þetta sem ég er að gera núna sko) en já, ég datt niðrá eitthvað rosa sniðugt (I hope!) en það er sem sagt einhver húðmeðferð með jurtum og skrúbbi og SKÖFU(!) sem á að stinna allt helv.... draslið og minnka ummál og e-ð. Dísús, ég mætti sem sagt í fyrsta tímann í dag, vissi sko EKKERT hverju ég átti von á, sá bara einhverja auglýsingu um grennandi meðferð og eitthvað sem hljómaði voða vel í mínum eyrum;oþ Ég fæ afhentar einnota g-streng (mjöööög sexy NOT) og leggst á bekk og trítmentið byrjar. Fyrst er settur einhver kornmaski og konan skrúbbar þessi helstu svæði (ég valdi mér lærin og fo&%ings hendurnar) já nei og svo er komið að hlutverki SKÖFUNNAR! Þannig að eftir skrúbbið þá skafar hún mig, allt mjög eðlilegt bara:-/ Eftir trítmentið þurfti ég að fara í afklipptar nælonsokkarbuxur og var ráðlagt að fara í teygjsokka á hendurnar, sem ég gerði, og má svo ekki fara í sturtu fyrr en á miðvikudag (lofa að nota tonn af ilmvatni til að drepa ekki mann og annan!:-/) Nema að the best part is yet to come! Í fjandans jurtakreminu sem var sett á mig (og má ekki þvo af) ertu ýmsar jurtir (eins og nafnið JURTAkrem gefur mjög glögglega til kynna) og þar á með BRENNINETLUR! Og minn herre gud er ég finna fyrir þessum helv... netlum núna!!! Er sko burning all over the place! Ekki töff sko:-/ En ég lofa því hér með að þetta er það síðasta heimskulega sem ég geri til að losna við lærpokana og fo$%&&ings bingóið, eins gott að þetta virki..! Á samt 3 tíma eftir, mun að sjálfsögðu klára þá...

Ekkert meira að sinni, BingóBjarney kveður

Engin ummæli: