laugardagur, júlí 29, 2006

Djö, fór aftur á Kínastofuna í gær (þar sem brenninetlupíning fór fram um daginn!) en í gær var ekki jurtablandan góða notuð, heldur bara e-ð krem og helv... SKAFAN! Og svo var "nuddað" (þjösnast!) á vandamálasvæðunum og jesús minn hvað það var sárt:-/ En mar lét sig nottla hafa það, notaði bara möntruna mína góðu:"Beauty is pain, beauty is pain" til að lifa þetta af!! Svo er eitt svona skipti eftir og svo er aftur jurtablandan notuð í síðasta tíma (get ekki beðið! einmitt:-/) En það er greinilegt að meðferðin er að virka, mér var heilsað "hæ HORPRJÓNN" í ræktinni í morgun:oD Ég hélt þetta væri einhver nýyrðasmíð BUT NO þá var þetta notað í sveitinni hjá viðkomandi um grannt fólk! hehe jebb ég er ekki að grínast, um grannt fólk! Sennilega hefur þetta verið blandað smá kaldhæðni hjá þessum aðila, en hann sagðist sjá stórmun á mér:o) eða sko, sá munur er ekki eftir meðferðina "góðu" það er soldill tími síðan ég hitt hann síðast, og það eru sennilega 10 kg farin síðan þá þannig að munurinn felst nottla í því;oþ
Og plís ekki halda að ég sé vangefin einkaþjálfari að nota einhverja quick fix nudd/jurta/sköfu/ógeðisaðferð til að grennast! Það trítment er eingöngu hugsað sem meðferð fyrir húðina mína sem er ekki alveg búin að vera að dansa með mér síðan ég grenntist:-/ Er að reyna að fá hana almennilega, og mín viðmið eru yfirleitt frekar há þannig að ágætt er ekki nógu gott! Vil fá hana mjöööööög fína! ;oþ Og þar sem æfingar og mataræði hjá mér eru í nokkuð góðum farvegi þá er ógeðismeðferðin algjör viðbót, en ekki lausn...

Talandi um æfingar, ég er mesti letipúki jarðar stundum! Ætlaði í ræktina upp úr 9, vaknaði um 8 og fékk mér nokkrar döðlur því ég ætlaði ekki á fastandi maga, stillti svo klukkuna 9:15, snúsaði til 10:40 og var mætt í ræktina 11:30! Hehe algjör haugur;oþ Tók klukkutímabrennslu og ágætis teygjur, sturta, Grænn Kostur og svo smáááááá legg, eða ég ætlaði að leggja mig í klukkutíma, slökkti á klukkuna og steinsvaf í 2 tíma! Vaknaði og hitti Hafrúnu í Smárabíói þar sem við fórum í bíó kl.17:30 á STICK IT! Hehe alveg eðlilegar, enda vorum við 2 27 ára, restin 10 ára stelpur og helgarpabbar! En ég elska að horfa á fimleika þannig að þetta var hin fínasta afþreying:o)

Jæja ætla í smá labbitúr í góða veðrinu, þýðir ekki að kvarta undan ömurlegu veðráttunni ef maður notar þá ekki þessa fáu daga sem maður fær!

Later...

Engin ummæli: