Jæja þá er það komið á hreint að ég mun eyða verslunarmannhelginni á Egilsstöðum, búið að lofa/hóta mér útihlaupi í Egilsstaðaskógi, og svo var mér einnig mútað með góðu veðri, eins gott fyrir viðkomandi að það gangi eftir!! ;oþ
Fljúgum austur, kostar ekki nema 18.000 báðar leiðir, næstum því gefins! Einmitt! Hefði alveg eins getað skellt mér í helgarferð til Köben eða London! En reyndar hefðu kortin mín fengið að súpa seyðið af því í verslunum bæjarins, plús það að á Egilsstöðum verð ég í töluvert betri félagsskap;o) þarf heldur ekki að borga fyrir gistingu, þannig að sennilega er ég að koma betur útúr því heldur en að skreppa út fyrir landsteinana...
Nú er komið að partinum þar sem ansi margir munu hrista á sér hausinn og spyrja mig hvað ég sé að spá o.s.frv. Passið bara að hrista ekki það mikið að hausinn detti af!! ;o) Ég fer á fyrstu handboltaæfinguna mína á þriðjudag! :oD Með Val of course, en allir sem standa að því (þjálfari og leikmenn) eru mjög skilningsrík við mig, þannig að ég má allavegna vera með þegar ég treysti mér til. Ég er að deeeeeeyja ég hlakka svo til! Nú er bara að krossa puttana og vona að allt draslið haldi..!
Ég veit ekki hvort það geti flokkast undir geðveilu, en ég er farin að sakna þess að fara út að hlaupa kl.5:15:-/ Einhver sjálfboðaliði?? Látið mig bara vita, ég er game:o)
Ekkert meira að sinni, heyrumst later kúkalabbs, muna að kjósa;oþ
5 ummæli:
Út að hlaupa segirðu... :) það má alveg athuga það.
Ég væri alveg til í hlaupafélaga..... orðin pínu leið á að hlaupa ein hérna.... þessi tími er eins góður og hver annar..... kemur þú ekki bara hingað austur til mín á morgnanna ;)
Áfram Valur.
Ég er jafnvel til í að fara með þér út að hlaupa í næstu viku félagi.. En í sambandi við könnunina.. Þá verður þú að bæta inn valmöguleikanum sem við vorum að ræða í gær.. :)
Flott, komin með 2 hlaupafélaga (sorry Eva, get því miður ekki talið þig með þar sem þú ert í öðrum landshluta!!) þið hin, þið verðið tekin á orðinu;oþ
Hilmar, Það er svo margt sem gerist í hausnum á mér sem ég gæti ekki útskýrt þó líf mitt lægi við, hef sem sagt ekki hugmynd um hvað ég er spá! ;oþ
Skrifa ummæli