miðvikudagur, júlí 12, 2006

Djöss snilld! Við stöllur ákváðum að sofa vekjaraklukkulausar og sofa út, vorum vaknaðar báðar kl.9:15. Skelltum okkur þá út í 40 mín göngutúr, komum og fengum okkar að borða (jájá erum algjörir nörrar, fengum okkur hafragraut) og svo var tekið saman dót og strikið sett á ströndina!! :oD Flatmöguðum þar í góða 2 tíma, vorum að koma heim til að borða fyrir æfingu (Dóra fer á fótboltaæfingu, er reyndar handleggsbrotin en gerir það sem hún má, ég fer í gym þarna við hliðiná æfingasvæðinu og worka out þar) ég fékk mér gróft pasta OG brauð með makríl (don´t ask me why! Það var samt rosa gott, alltaf gott að auka víðsýnina í mataræðinu;oþ) svo er bara að taka vítamínin sín og slaka á þar til við röltum yfir á æfingasvæðið, lífið gerist ekki mikið betra! Efast samt ekki um að verði mjöööög notalegt að koma aftur heim annað kvöld;o)

Bara smá update að þessu sinni, nenni nebbla ekki meir;oþ later...

Engin ummæli: