
Annar dagur í lífi letidýrsins að kvöldi kominn! Allavegna var fyrri parturinn afar mikið letilíf!! Lá uppí rúmi til kl.15, nottla með matarpásum inná milli, var samt ekki að hafa mikið fyrir því, heimsendingaþjónusta Nings kom sér t.d ágætlega í dag;oþ En popp í morgunmat er sennilega ekki til eftirbreytni:-/
Horfði á helminginn af Gladiator í gær og restina í morgun, gott ef að kellan er ekki að verða veiklunduð með árunum, ég get svo svarið að ég var næstum því (takið eftir: NÆSTUM ÞVÍ! Það þýðir: ekki alveg!) farin að grenja í nokkrum atriðum! Hvað? ÞAU VORU SORGLEG!!
En kl.16 fór ég og massaði fætur með Hafrúnu og Drífu, tókum virkilega góða æfingu, greinilega gott teymi þar á ferð;oþ Þar sem Habba Kriss kom hjólandi niðrí Sporthús og hjólið mitt var uppí Sph þá ákváðum við að taka smá hjólatúr eftir æf., hjóla svo heim til Höbbunar og fá okkur e-ð í gogginn:oD Við hjóluðum ágætis hring í Kópavoginum og svo heim til hennar í Breiðholtið, og guð minn góður brekkan frá Breiðholtsbrautinni og upp í engjaselið er hreinn og klár dauði! (spilar kannski inní að við vorum nýbúnar að taka killer fótaæf. og hjólarúnt í Kóp!) En nottla ógeðslega gott eftir á:o) Við elduðum kjúlla og grænmeti, gerist ekki mikið hollara! Þannig að litla letidýrið tók sig nú aðeins á þegar líða fór á daginn:o)
Og í tilefni þess að það er alltof langt síðan ég heiðraði femínistana þá ákvað ég að leyfa þessu að fljóta með: (vil samt taka fram að ég bjó þetta ekki til, óþarfi að vera pissed út í mig! Eins og við segjum í Ameríkunni:"Hey, don´t shoot the messenger!")
1.Ef þú heldur að þú sért feit, þá ertu það örugglega. Ekki spyrja.
2.Lærðu sjálf á klósettsetuna, ef hún er uppi, settu hana þá niður.
3.Konudagur, Mæðradagur, samvistarafmælisdagar, þeir gleymast.
4.Ef þú spyrð spurningar sem þú vilt ekki fá svar við, ekki spyrja.
5.Stundum erum við bara ekki að hugsa um þig, sættu þig við það.
6.Köttur er bara köttur, óþarfi að grenja í viku ef hann fer.
7.Hundar ERU betri en kettir. Punktur.
8.Bróðir þinn er asni, fyrrverandi gæinn þinn líka og ábyggilega pabbi þinn.
9.Segðu hvað þú vilt, ekki hinta að því.
10.Að pissa standandi, þýðir að það fer útfyrir.
11.Já og Nei, eru fullkomlega gild svör.
12.Hausverkur í 7 mánuði er vandamál, farðu til læknis.
13.Mamma þín þarf ekki endilega að vera besti vinur okkar.
14.Já, það þarf að setja bensín á bílinn. (Habba Kriss þessi er tileinkuð þér!;oþ)
15.Nei það þarf ekki að vera að stjörnumerkjabókin segi til um hvort við eigum saman eða ekki.
16.Allt sem var sagt fyrir 6 til 8 mánuðum er eitthvað sem má ekki nota í rifrildum í dag. Það sem var sagt fyrir sólarhring síðan hefur fyrnst.
17.Ef það er eitthvað sem við segjum sem má túlka á 2 vegu en annað atriðið særir þig og gerir þig illa, þá meintum við auðvitað hitt.
18.Ekki strjúka lampanum ef þú vilt ekki að andinn komi út.
19.Þú getur annað hvort beðið okkur um að gera eitthvað eða sagt okkur hvernig þú vilt að það sé gert, en ekki bæði.
20.Christofer Columbus þurfti ekki leiðbeiningar,,, ekki við heldur.
21.Konur í wonder-bra og fráhnepptum skyrtum efst, eru búnar að tapa réttinum um að ekki megi horfa á brjóstin þeirra.
Letidýrið has spoken...
3 ummæli:
Ég man ekki eftir að hafa tekið þessa mynd af þér í morgun.......
Hehe nei þú varst svo fullur að það er ekki skrýtið að þú manst það ekki!! ;oþ
Skrýtið...man samt alveg eftir hárgreiðslunni þinni þegar þú vaknaðir......:)
Skrifa ummæli