þriðjudagur, júlí 11, 2006

hej allioppa, eða hvað það er sem svíarnir segja...

Úff miðað við öll kommentin á síðustu færslur þá líður mér eins og mín sé sárt saknað úr bloggheimum!! Öh eða ekki..!

Þá er kellan komin til Malmö, mætt í heimsókn til Dóru (Stefáns) ferðalagið í gær á allann hátt mjög eðlilegt, fórum frá Gautaborg kl.7:30, fórum til Kaupmannahafnar og þaðan tók ég lestina til Malmö þegar hinir fóru á flugvöllin (Svíþjóð-Danmörk-Svíþjóð, mjög töff) Við fengum töluverðan tíma í Köben og ég get svo svarið það að ég held ég hafi brætt kortin til ösku á Strikinu!!
Dagurinn í dag hefur svo verið afar næs, byrjuðum á að vakna kl.8 og mættar í ræktina kl.9, ég fór bara með á æfingasvæði Malmö FF og lyfti með Dóru þar, sáum svo kallaliðið á æf þegar við vorum að fara, go ef að mér leið ekki bara eins og smá celeb þegar ég vappaði um æfingasvæðið og fór inn í búningsklefann og alles, hehe íþróttahetjan mikla;oþ Fór svo með Dóru á spítalann þar sem verið var að skipta um gifs, og hún er núna með ljósblátt gifs, rosa svalt (Malmö spilar í ljósbláu, sem var ástæðan fyrir litavalinu) svo var mara tekinn labbrúntur niður í bæ og skoðað pleisið, voða kósý bær. Komum svo heim með mexíkóskan mat, ég ætlaði aaaaðeins að leggja mig eftir kvöldmatinn en endaði á að deyja í 2 tíma! Það var alveg næææææs!! Verður samt spennandi að sjá hvernig gengur að sofna í kvöld:-/ (erum 2 tímum á undan Íslandi) svo er bara ræktin og jafnvel ströndin á morgun, spáin er 27 stiga hiti og glampandi sól:oD

Annars var Partille Cup-ferðin frábær í alla staði, stelpurnar stóðu sig eins og hetjur, bæði yngra og eldra árið komust í A-úrslitin en bæði lið duttu svo út í 16-liða úrslitum, eldra árið vann sig upp úr 32-liða, en yngra fór beint í 16-liða, og hefði eiginlega átt að vinna þetta lið en svona er boltinn, fæst ekki alltaf rökrétt niðurstaða:-/ En liðið sem sló eldra árið út var mjög sterkt og engin skömm að því að tapa fyrir þeim, ætlum bara að spýta í lófana og æfa enn betur á komandi ári;o) Æjá, ég er búin að taka að mér 5.flokkinn líka, verð því aðalþjálfari í 4. og 5.flokki og aðstoðarþjálfari í unglingafl. á komandi vetri. Held það verði fínt með skólanum og ég efast um að ég verði e-ð uppí Sporthúsi, ætla að njóta þess að vera BARA nemi:oD Eeeen engar yfirlýsingar strax;oþ

Jæja, þarf að hætta, við erum mjög eðlilegar, með grænan maska framan í okkur, ákváðum að taka almennilegt stelpukvöld á þetta:o) En nú er kominn tími á að þrífa græna ógeðið framan úr sér, kem kannski með einhverjar skemmtisögur úr ferðinni síðar, ef ég nenni. T.d tívolíferðina í Liseberg þar sem mestu hræðslupúkarnir vildu sitja hjá mér í scary tækjunum, hehe ég hræddi þær EKKERT þegar komið var af stað! * hóst * en þær fyrirgáfu mér og vildu sitja hjá mér aftur í næstu tækjum. Þetta var algjör snilldarferð...

Að lokum, þar sem ég hef stundum talað um þegar orð brenglast í hausnum á mér, við vorum með fararstjóra sem hétu Helga og Vaka, og ég mætti eitt sinn askvaðandi út í strætóskýli og spurði hvar Velga og Haka væru eiginlega!! Svo hét þriðji fararstjórinn Auður, þannig að ég kallaði þær ara Velga, Haka og Sauður það sem eftir var ferðar, kellan alltaf jafn fyndin..! ;oþ

Farin...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég skal kommenta:)

bjarneybje sagði...

Takk ástin mín, ég vissi samt alveg að þú saknaðir mín, hef fengið að heyra það nokkrum sinnum;oþ
En alltaf gaman að fá komment:oD