Þá er síðasta hluta kínameðferðarinn lokið og guð minn góður, þetta geri ég ekki aftur!! Fót í jurtablönduóbjóðinn í dag, og hefði ekki mátt fara í sturtu fyrr en á fös.morgun til að virknin verði sem mest. Ég fékk algjörann viðbjóð á að láta mér liða illa útaf svona rugli (er reyndar að fara að detta í að byrja á túr og þá er sársaukaþröskuldurinn lægri, þannig að þetta var ekki alveg að gera sig:-/) að ég fór í sturtu 3 tímum síðar og bara krem eftir á, en samt er ég ennþá með sviða þrátt fyrir sturtuna (notaði sápu og alles) og kremið OG fór á handboltaæfingu og svitnaði einhverju út! En hér með er það orðið opinbert að ég er hætt að gera svona heimskulegt (og fo%&ing vont!!) fyrir lúkkið! Held mig innan hefðbundna rammans hér eftir ! (þ.e.a.s minns hefbundna ramma;oþ)
Eins og fram kom að ofan þá skellti kellan sér á handboltaæfingu áðan:oD Algjör sniiiiilld, djöfull elska ég þess íþrótt! Hituðum upp í fótbolta, en þar hefði séra Friðrik sennilega ekki verið mjög ánægður með okkur þar sem kappið bar fegurðina klárlega ofurliði! Jæja, við fáum allavegna prik fyrir viðleitni;oþ Svo var farið í smá þrek, sendingar og svo spil. Þetta byrjaði ágætlega hjá mér, átti nokkrar góðar slummur, en svo bara allt byrjaði ég að skjóta í stöng og slá, og eingöngu stöng og slá! Hefur líklegast eitthvað með það að gera að maður skýtur ekki jafn vel þegar maður er orðinn þreyttur, og sennilega vantar nú eitthvað aðeins uppá handboltaformið hjá kellunni;oþ Jæja það kemur, þetta var fyrsta æfingin mín, en pottþétt ekki sú síðasta! Í bili allavegna...
Ekkert meir að gerast í lífinu mínu núna, later kids
3 ummæli:
Fékk engin önnur að skjóta í liðinu þínu...?:)
öh nei, átti ég að leyfa þeim það?? ;oþ
Ætlaði bara að óska þér til hamingju með gáfulega ákvörðun ;o)
Skrifa ummæli