þriðjudagur, ágúst 15, 2006


Eysteinn var svo sætur að bjóða mér með sér á Ísland-Spánn, og ég átti eitt move sem ég mun seint fyrirgefa mér, ÉG GLEYMDI GLERAUGUNUM MÍNUM!! Þannig að ég sá þá alla í móðu! Meiriháttar að vera með spænska landsliðið LIVE fyrir framan sig og SJÁ ÞÁ Í MÓÐU! Djöss kæruleysi:-/ Ég spurði Eystein hver væri númer 99 í íslenska landsliðinu, þá var ég að meina Gunnar Heiðar sem var númer 9, töff að sjá í móðu OG tvöfalt! Spurning um að fara að reyna að nota linsur aftur...

Annars sit ég hérna kem kælipoka á lærinu, það er svona þegar gamlar "kempur" draga fram skónna aftur, ekki eins og maður sé búinn að vera mikið í sprettunum síðustu 7 árin eða svo! Svona hnjask hlýtur að æfast af manni með tímanum! Annars er þetta bara mjög væg tognun, var nánast með í öllu á æfingu áðan en sleppti í rauninni bara spilinu af hreinni og klárri skynsemi (sko kellan hefur þetta í sér;oþ) nenni ekki að gera þetta enn verra og vera þ.a.l lengur frá. Skellti mér bara í útihlaup í staðinn, var reyndar búin að skokka aðeins og lyfta fyrir æfingu, en þegar maður er að vinna upp 7 ára fjarveru þá þýðir lítið að vera í einhverju dútli:-/ hehe mjög skynsamlegt líka þegar mar er með skrokk á við miðaldra konu;oþ

Jæja verð að fara að lúlla, later....

Engin ummæli: