föstudagur, ágúst 04, 2006

smá röfl...

Ég og Hafrún fórum í mjólkursýrutest í gær, það var afar fróðlegt og gott að sjá svart á hvítu hver púlsinn á að vera í þolþjálfun, fitubrennslu og svo endurheimt. Við erum t.d báðar út fyrir normið varðandi þjálfunarpúls (óvenjuhár hjá okkur báðum) en hins vegar hleyp ég hægar til að komast í þennan púls, sem þýðir að ef við færum saman út að hlaupa, ekki með púlsmæli og ég væri bara að berjast við að halda í við hana þá er sorglegi parturinn sá að ég væri ekki að fá neitt úr hlaupinu! Mjólkursýruþröskuldurinn hækkar ekki, sennilega myndi þolið batna e-ð örlítið með tímanum en ekkert á við það sem það gerir þegar ég hleyp á mínum hraða. Ástæaðn fyrir því að ég er að skrifa um þetta er sú að mér finnst íþróttahreyfingin (aðallega boltaíþróttir) algjörlega lömuð varðandi þetta! Það væri hægt að fá svo miklu meira útúr hverjum og einum með aðeins einstaklingsmiðaðri þjálfun, og það eru ekki flókin próf sem þyrfti að framkvæma. Staðreyndin er hinsvegar sú að yfirleitt eru undirbúningstímabilin bara djók! Öllum hent í sama prógramið og það er varla komið inní íþróttamenninguna hérna jafnvægis/fyrirbyggjandi meiðslaæfingar, s.s við erum ljósárum á eftir hinum norðurlöndunum sem eru oftast með sér fitness þjálfara. Ömurlegt að horfa á eftir leikmanni eftir leikmanni í meiðsli sem hægt hefði verið að fyrirbyggja (hljómar þetta eins og ég tali af biturri reynslu?? ;oþ) Ég er ekki að alhæfa, það eru einhver lið með þjálfara sem hafa actually e-ð vit á þeirri þjálffræði sem gerist utan vallar, en sorglega fáir miðað við hvað þetta er crucial atriði! Ég er ekki að setja mig á háan hest og þykjast hafa meira vit á þessu, en þetta er pottþétt það sem ég mun leggja mikla áherslu við þjálfun á stelpunum mínum, og er algjörlega óhrædd við að viðurkenna vanþekkingu mína og leita til reyndari aðila ef mér finnst ég þurfa þess. Er t.d búin að tala við frjálsíþróttastelpu um að koma og kenna stelpunum nokkrar drillur og almennilegan hlaupastíl. En það virðist sem mörgum finnst þeir vera að kyngja einhverju stolti með því að leita til annarra aðila, ótrúlega sorglegt því hægt væri að bæta svo mikið með litlum breytingum:-/

Jæja hætt þessu tuði! Er búin að taka til í herberginu mínu, núna er actually gangvegur frá hurð að rúmi!! ;oþ En var að borða súkkulaði þannig að ég fer að hugsa mér til hreyfings í ræktina hvað af hverju!! hehe, tek ekki sénsinn á að þetta setjast á skottið!!
Gaman samt að segja frá því að í lok mjólkursýrutestsins í gær þá sá gaurinn, sem sá um testið, ástæðu til þess að nefna það við mig að ég yrði að passa mig á að verða ekki gennri!! hehe, öh já einmitt, ég skal passa mig! ;oþ 3 kg eftir, svo er ég hætt (með hefðbundnum, sársaukalausum aðferðum!!) Lofa;o)

Farin...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sami maður sagði að það væri alveg nauðsynlegt að ég myndi læra að hlaupa ´hjá frjálsíþróttaþjálfara. Minnir mig á þegar gamli leikfimikennarinn minn, Siggi Helga, sagðist vera alveg hissa á að ég hefði komist landslið í boltaíþrótt því aldrei hefði ég kunnað að hlaupa (ekki það að ég hefði verið líklegri í fimleikunum :) )
Skil reyndar ekkert í því að mjölkursýrugaurinn bennti mér ekki á það að ég mætti alls ekki við að missa kg!

bjarneybje sagði...

Hehe, reyndar skil ég ekki hví hann sá ástæðu til að nefna það við mig því ég hef nú alveg ágætis orkuforða ennþá..!

Og hann var nú búinn að hrósa þér, sagði að þú ættir að fá frjálsíþróttaþjálfara til að fara yfir hlaupastílinn! Það hlýtur að teljast hrós!! ;oþ

Nafnlaus sagði...

Mig er búið að langa í svona mjólkursýrutest í langan tíma en hvergi fundið neitt um þau. Getur þú bent mér á hvar maður getur nálgast upplýsingar og svona?
Dyggur lesandi :)

bjarneybje sagði...

Ég fór til íþróttafræðings sem vinur minn þekkir, ég veit samt ekki hvort hann sé að gera þetta relgulega, skal athuga það! En ég veit það er einn einkaþjálfari í World class sem gerir þetta, Jóhann heitir hann, gætir prófað að tala við hann.

Ég mæli hiklaust með að fara í svona test, finn strax mun á mér í hlaupunum, farin að finna aftur vellíðan í hlaupinu sjálfu, og svo er gott að vita til þess að maður sé að gera þetta rétt:o)

Nafnlaus sagði...

Takk kærlega fyrir. Ég prófa að tala við Jóhann.
kv dyggi lesandinn