fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Dísús það eru smá byrjunarörðugleikar við að byrja aftur í handboltanum:-/

Smá tognun framan á læri búin að vera að hrjá mig og svo áðan þá var næstum því liðið yfir mig! Reyndar er smá forsaga, ég er frekar treg við að segja frá því þar sem mér finnst það hljóma eins og lame afsökun:-/
Ég var að greinast með astma en á eftir að fara í frekari test til að finna út lyfjaskammt og e-ð, (það reyndar útskýrir af hverju ég, sem æfði alltaf mest, var samt alltaf með lélegt þol, hef aldrei almennilega uppskorið eins og ég hef sáð:o( en ágætt að vera komin með aðra skýringu en þá að ég sé bara aumingi, viss léttir að það hafi verið e-ð að, þó þetta sökki nottla) en já áðan voru 6 x 400 m "sprettir", ég meikaði 3, en hljóp samt 3 aukahringi á mínum hraða, fór með því hugarfari í handboltann að ég ætla alltaf að gera mitt besta, má ekki miða mig við hinar alveg strax, þannig að auðvitað er ég ekki í sama handboltaformi og þær (þó að ég var ekki sú eina sem hætti, en ég var sú eina sem hljóp aukahringina) svo komum við uppí höll og þá byrjaði ég að svitna köldum svita, skjálfa og sjá svarta bletti, meiriháttar töff!! Sennilega blóðsykurfall þar sem ég hafði ekki borðað síðan kl.13 (æfingin var 17:30) hefði þurft smá bita um 3-4 leytið, ég "brunaði" (skjögraði) fram í afgreiðslu og fékk mér Fanta (vantaði sykur) og þambaði það á nanósekúndu! Ég drekk nánast aldrei gos en á þessari stundu var þetta besti drykkur sem ég hef á ævinni smakkað!! Hresstist svo eftir smá stund og náði að skokka í rúmar 10 mín. með Höbbu og Lilju eftir æf.
Gústi þjálfari mjög hress með mig, einmitt! Veit ekki alveg hvað hann heldur um mig:-/ En ég ætla að halda áfram, ætla að vera komin í almennilegt stand fyrir Benidorm...

Skólakynning á morgun, sem betur fer þekki ég eina stelpu sem er að fara með mér í skólann, ætlum samfó:o) Og svo byrjar skólinn á mánudag, er bíllaus í augnablikinu, sem er ekki mjög töff þegar skólinn manns er í Keflavík!! En þetta hlýtur að fara að ganga í gegn, nenni ekki að eyða alltaf 2 mánuðum á ári bíllaus, sökkar:-/ Sem betur fer á ég góða að sem eru í sama skóla og eru búnir að leyfa mér að fá far:o) Takk krúttibollurnar mínar;o*

Reykjavíkurmaraþonið á laugardag, ætla í latabæjarhlaupið, neh djók fer í 10 km, veit svo sem ekkert hvaða tíma ég á að stefna að, stefni á undir 1 og 1/2 tíma;o) bestu tímarnir eru um 30 mín, það er nottla bara einhverjir geðsjúklingar sem eru að ná því sko! hehe gegt bitur! En þetta er í fyrsta sinn sem ég hleyp svona langt á malbiki, veit ekkert hvernig þetta fer! Það eru 3 stelpur úr 5.flokknum mínum að fara að hlaupa 10 km, ekkert smá duglegar! 13 ára kvikyndi, algjörir snillingar:o)

Jæja nenniggi meir, later...

Engin ummæli: