Kellan er að tapa sér þessa dagan! Mætti á bjórkvöld í skólanum í síðustu viku og skellti mér svo á djammið á laugardag! Fór í afmæli til Önnu pönnu, og ákvað að taka tappann úr bokkunni svona í eitt skipti!! ;oþ Þannig að þá er nú alveg komið efni í smá blogg, skil ekki hvernig í andskotanum mér tekst alltaf að koma mér í einhverj vitleysu þegar ég fæ mér í aðra tánna! Hey ég var samt ekki með veskið mitt og dyravörðurinn á Hverfis ætlaði ekki að hleypa mér inn af því að ég var ekki með skilríki!! Ég var gegt ánægð, en samt pirruð yfir að hann ætlaði ekki að hleypa mér inn, en ég var svo ánægð að hann héldi að ég gæti mögulega ekki verið orðin tvítug að ég gat ekki verið reið, hló bara en var að reyna að vera gegt pirruð! Æ ég vona að þið fattið þetta;oþ En svo hleypti hann mér inn af því að ég leyfði honum að sjá augnhrukkurnar up close!! Eða held að það hafi verið ástæðan, eða kannski nennti hann bara ekki að hlusta á tuðið í mér lengur;oþ
Og já hin vitleysan sem ég kom mér útí, eða kannski er það ekki vitleysa, sé til;o) Þá hitti ég annan gaurinn sem labbaði kringum landið, þarna haltur leiðir blindann dæmið (hitti þennan halta), ég nottla þarf að ræða málin við kauða, lýsa yfir aðdáun minni og sonna. Svo fæ ég símtal í gærkvöldi:"Hæ Bjarney"
ég: "ö hæ"
kauði:"hvað segirðu, ertu að koma að hjóla með mér í kringum Bandaríkin?"
ég:"ha, oh men hvað ertu að tala um?"
k:"nú þú sagðir mér að hringja í þig, ég sagði þér að ég væri að fara að hjóla hringinn í kringum Bandaríkin og þú varst æst í að koma með!"
(ég var sko ekki aaaaaalveg viss við hvern ég var að tala, en ca. á þessum tímapunkti sagði hann mér það)
ég (skellihlæjandi):"hahaha þúrt snillingur að hringja, djöfull er ég samt vangefin!"
k:"en í alvörunni, ertu ekki til í að koma og hjóla allavegna eitthvað með?"
ég:"það er bara nokkuð góð hugmynd, ég er alveg til í að skoða það"
Svo ákváðum við að vera í bandi og útfæra hugmyndina betur, ferðin á að vera í febrúar 2008. Ég ætla í alvörunni að skoða þetta ef þetta er raunhæfur möguleiki, en alveg spurning hvort mar eigi að setja tappann aftur í bokkuna!! En samt kannski ekki, hefði ekki komið mér í þessa aðstöðu ef ég hefði verið heima hjá mér sofandi, edrú eins og ca. allar helgar síðustu 2 árin eða svo..!
Ætla að melta þetta ;o)
Later...
8 ummæli:
ussss kellan bara komið á tjúttið hvað er að gerast :) ánægð að þú skemmtir þér vel skvísa og gangi þér súper vel í skólanum luvBegga
Mér lýst vel á þessa USA ferð, tekur örugglega geðveikan tíma en alveg þess virði held ég :)
Já Begga mín, kellan orðin crazy! Held samt að tappinn sé kominn aftur í bokkuna, er búin að vera alvega tussulega í útliti og líðan, totally not worth it!!
Fannar, glætan að ég sé að fara að hjóla allan hringinn, hjóla 100 km og kíki svo í e-ð moll eða nýti tímann í e-ð sniðugt;oþ
Bjarney... Ó mæ god!!! Ég tala við þig á msninu fljótlega ;)
Nei... common þú tekur nú allavega hálfann hringinn... ;) ha... þá get ég sagt öllum hversu mikilll massi frænka mín sé... ;)
Láttu korktappa í þetta helvítis hjólarugl, er ekki í lagi með þig! Þó svo að ég viðurkenni það að Bjarki.is er heitur gæji.
En endilega haltu áfram að skemmta þér, þetta þurrkaða lúkk er löngu orðið þreytt.
P.s. Vona að það verði ömurlegt úti á Benidorm.
Bæ.
Egill minn, ég elska thig líka;o)
Elsa Rut, spurning um ad mar fari ad gera litlu fraenkuna ad mini-me, vantar fleiri massa í aettina!! ;op
haha, jámms endilega held það veiti ekki af að massa mann aðeins til... ;) :P haha...
btw. þú virkar sem fín uppfitjun á umtalsefni í tímum, haha, "veist hvað klikkaða frænkan mín er að gera núna, haha... :P"
Skrifa ummæli