Þá eru allar breytingarnar að ganga í garð, skólinn að komast í gang, þessi vika reyndar voða tjill en samt eru einhver þolpróf á morgun, og m.a SUNDPRÓF!! Ég sökka sko feitt í sundi:-/ Reyndar er Reykjavíkurmótið að byrja á morgun, og ég er í hópnum hjá Val þannig að ég ætla að sjá til hvernig sundprófið fer, það á víst bara að vera einhver mælikvarði á getu manns og ég þarf ekkert sundpróf til að segja mér að ég sé nánast ósynd! Var ekkert svo gott eftir á hugsað að hafa alltaf getað svindlað í skólasundinu í Breiðholtsskóla hérna den:-/ Náði nebbla í botnin nánast alla leið yfir og nýtti mér það óspart!! Vá hvað það er að koma feitt í bakið á mér:-/ Nema ef ég er með froskalappirnar mínar, þá hreyfist ég stundum úr stað..! :oD
Annars líst mér rosa vel á skólann, flott aðstaða og kennararnir virkuðu solid, efast svo ekki um að samnemendur mínir séu skemmtilegir:o) Annars verð ég bara að grípa til minna ráða og vera með uppistand í tímum;oþ En ef þeir eru ekki skemmtilegir þá mun þeim sennilega ekki finnast grínið mitt fyndið:-/ (þar sem minn húmor er nottla fyndin, þeir sem fíla hann ekki eru þessi húmorslausu! ;oþ) allavegna hlæ ég alltaf mest þegar mér finnst ég segja e-ð fyndið, ég næ þá allavegna að entertaina sjálfri mér:o)
Hey vá hvað ég get verið vitlaus stundum! Ég reyndar bannaði Gillzenegger Attenborough dýralífsfræðingi með meiru, að nefna þetta við nokkurn mann en þetta var alveg steikt! Við félagarnir vorum að fara í lunch í gær og ætlum á mínum (mömmu) bíl. Röltum útá bílastæði og ég á það til að gleyma hvar ég lagði:-/ Svo er ég geðveikt að leita og stend og hugsa í svona mínútu og svo allt í einu:"hey já hérna er hann" þá stóð ég sem sagt við hliðiná bílnum:-/ svo þegar ég fattaði hversu ótrúlega ljóskulegt þetta atriði var þá DÓ ég úr hlátri! Held það sé samt alltaf á svona stundum sem Egill íhugar að afneita öllum vinatengslum við mig:-/ vá hvað ég er stundum glær, Snorrún og Hafri ættu að geta vitnað um það... (dyggir lesendur muna sennilega eftir því gáfulega kommenti mínu)
Jæja farin að borða, hlaða kolvetni fyrir leikinn á morgun:o) Sem er kl.18 í Seljaskóla peepz, vá hvað verður skrýtið að spila þar aftur, held það hafi ekki gerst síðan ég var 17 ára!
Later...
4 ummæli:
Hmmm ég er ekki heldur sú besta í sundinu - það var kannski ekki sniðugt að svindla svona mikið á sundprófunum í breiðholtsskóla :S
Nei klárlega ekki!! Hey ekki nema ég fái bara að taka sundprófið mitt þar! ;oþ
ætlaði bara að staðfesta lesninguna með kommenti (vísað í samtal síðastliðinn laugardag um gæði vina hí hí)
og KOMA SVO í leiknum í kvöld - verð því miður fyrir framan tölvuna en ekki á bekknum þér við hlið í fyrsta leik (nema kellan byrji bara inná!!)en mæti fersk á fimmtudag... c'ya
Lilja
hahaha takk fyrir þetta ezzkan;o* hef svo sem aldrei efast um að þú sért ein af mínum elstu og bestu vinkonum, en gaman að vita þegar vinir manns nenna að fylgjast með manni:o)
Já vona að við getum klappstýrast saman á morgun! Þ.e.a.s ef mér verður treyst í hóp aftur...
later;o)
Skrifa ummæli