föstudagur, ágúst 18, 2006

hey vó gleymdi

Hey vó, ég ákvað að blogga aftur af því að ég gleymdi að segja frá því að ég var litin hornauga í skólanum!! Kynnindarfundurinn var haldinn í húsakynnum Háskólans í Reykjavík við Ofanleiti. Þarna voru samankomnir allir nýjir nemendur skólans og það var soldið gaman að reyna að giska á hver væri í hvaða deild, t.d stærðfræðinördarnir, viðskiptafræðigellurnar, íþróttafríkin o.fl Nema bara hvað, ég stóð í sakleysi mínu við eitt borð fram á gangi, íklædd víðum hermanngrænum buxum og rauðri hettupeysu, bara frekar sporty held ég, nema að ein gellan, sem var klárlega að fara í viðskiptafræðina, var nánast í dragtinni, leit á mig, og svo leit hún aftur á mig, horfði niður og upp aftur, sem sagt rannsakaði mig frá toppi til táar OG SETTI UPP SVIP! Iss ég var nú næstum því búin að öskra á hana:"Hey B-I-A-T-C-H, ég er sko í 10.000 króna peak performance peysu og 12.000 kr Nike-skóm, þú hefur sko ekkert efni á að gefa mér hornauga!" Huh! Hver er snobbuð núna ha?!! hehe reyndar fannst mér þetta bara vibba fyndið og þakkaði eiginlega mínum sæla fyrir að vera ekki að fara í e-ð svona pæjufag, fínt að geta bara mætt í þægjó fötum og þurfa ekki að vakna 2 tímum fyrr til að setja upp fésið! Annars leist mér vel á þetta allt saman;o) fyrir utan hornaugað það er að segja...

Takk fyrir kommentin áðan Harpa og Elfa, þið eruð að setja afar gott fordæmi;o)
Og Harpa, ég er mjöööög stolt af þér að skella þér í Latabæjarmaraþonið;oþ Reyndar finnst mér þetta uppátæki algjör snilld! Krakkarnir ekkert smá spenntir fyrir þessu! Ætla að fara með Óskari Degi ef lappirnar á mér verða enn hangandi á sínum stað:o)

Lúðinn, sem fékk gefins illt auga í dag, er farinn að gera sig ready fyrir háttinn, later...

Engin ummæli: