
Jæja þá er komið að því að við Valsstelpurnar skellum okkur í æfingaferð til BENIDORM! :oD "öh æfingaferð á bene, einmitt" hugsa núna eflaust margir, en ég skal sko alveg segja ykkur það að í fyrra þá var þetta sko enginn dans á rósum (fyrir stelpurnar, ég var bara í fríi;oþ) en það er alveg strembið að æfa 2x á dag í 25-30 stiga hita! Ætla samt ekki að kvarta sko, þetta er algjör sniiiiiiiiilld! En þetta er ekki bara einhver djammferð eins og margir virðast halda...
Hey þið megið giska þrisvar á hvort ég sé byrjuð að pakka! Öh nei:-/ en það er mæting kl.10 á herra Leif í fyrramálið þannig að ég hef nægan tíma;oþ Á reyndar eftir að fara núna og hlaupa 5 km, og svo á ég að fara í e-ð astmatest kl.8:45 á landspítalanum í fyrramálið, vona að ég verði komin uppá völl í tæka tíð! Efast nú um að þetta test taki langan tíma, +a bara að anda einhverjum efnum að mér til að finna út lyfjaskammtinn minn or something, vona bara að ég þurfi ekki að bíða neitt eftir að komast að! Og svo þarf ég bara að púsla því saman hver getur skutlast með mig og sonna, any volunteers?? ;oþ
Skólinn er byrjaður að rúlla, er að spá í að fá að vera súkkulaði þegar spilaður er handbolti, stórhættulegt að spila við fólk sem kann þetta ekki! Brotin í dag voru ekkert að láta mér líða mjög save líkamlega! Eða sko kannski ekki hættulegt fyrir fólk sem er ekki búið að slíta krossband tvisvar, en ég er ekkert æst í að slíta í þriðja sinn:-/ tala við kennarann, held ég megi samt alveg sleppa, ekki eins og ég kunni ekki alveg að spila hann, plús það að ég spila hann hvort sem er 5-6x í viku...
Jesús ég er vangefin!! Af hverju er ég ekki að pakka, eða hlaupa, eða að reyna að púsla saman morgundeginum?? nei gott Bjarney, bloggum bara aðens í staðinn!! Læt þetta gott heita, kem með færslu frá bene ef ég nenni að eyða tíma í ykkur;oþ
Reynið að sakna mín ekki of mikið, later biatches....
9 ummæli:
jiiiiiiiii hvað ég öfunda ykkur alveg ótrúlega ótrúlega ótrúlega mikið :/ mig langar bara ekkert með...þessi ferð verður snilld eins og í fyrra og örugglega enn betri :) ÉG spyr nú samt hver á að taka allar myndirnar - getið þið ekki splæst í mig út :) luvBegga
ég væri sko alveg til í að safna í púkk fyrir þig!! Þó það væri ekki nema bara til að taka myndir! ;oþ hehe ne væri sko alveg til í að hafa þig með, eifaldlega af því að þúrt yndi, luv ya;o)
hehe næsta fyllerí verður þá hjá þér 2008 þegar þú verður búin að hjóla hringinn í kringum Bandaríkin :-)
úff já, allavegna ekki fyrr! Eða lofa samt engu, en stefnum á það;o)
ég held að það verði ekki fyrr en 2009, maður er ekki svo fljótur að hjóla hringinn í kringum USA.... "Aspen, Californina ...."
Ég ætla ekkert allann hringinn!! Kemurðu með jp? ágætt fyrir þig að hafa e-ð til að æfa fyrir og stöðva útþensluna;o)(hey ekki mín orð, mamma þín sagði þetta;oþ)
Góða ferð vinan !!!!
mamma mín er rugludallur. Annars væri alveg gaman að hjóla niður klettafjöllin :)
Ég er til í "smá" hjólatúr um bandaríkin:) en hey, ég kem á klakann á fimmtudaginn-vona að þú takir smá sól með þér frá Benó. :)
Skrifa ummæli