Ég hef nú einhvern tímann áður látið móðann mása um pakkið sem býr hérna fyrir ofan okkur, og nú er komið að því aftur! Ég er nú ekki mjög ofbeldisfull manneskja að eðlisfari, en þegar þessir guttar eiga í hlut þá langar mig, ekki bara að dangla aðeins í þá, heldur einfaldlega berja þá í klessu! Það eru þvílík læti í þeim, stundum ekki hægt að sofna fyrir öskrum og látum, og svo er búið að skemma póstkassa, og eitt sinn fór pabbi fram á gang og rak einhverja krakka út, stuttu síðar var búið að rispa bílinn hjá mömmu og pabba töluvert. Þá var ég BRJÁLUÐ, mamma eiginlega stoppaði mig af því hún var hrædd við frekari skemmdarverk. Ömurlegt að þurfa að lúffa fyrir þessu hyski! Og það nýjasta er að það var brotist inn í geymslu hérna niðri, ekki okkar geymsla en ég fæ að geyma alla búslóðina mína þar (þar til ég flyt næst;oþ) og búið að stela öllum fermingarskratgripunum mínum, og búið að fara í gegnum allt dótið mitt! KRÍPÍ!! Og greinilega verið nostrað aðeins við þetta, fyrst var reynt að spenna hurðina upp, en svo var læsingin skrúfuð úr! Og ekki var brotist inní stigaganginn, þannig að það er mjög auðvelt að leggja saman 2 og 2 og finna út hver á hlut að verki! Helv... pakk..!
Að öðru skemmtilegra! Við urðum Reykjavíkurmeistarar:o) Enduðum að vísu í 3.sæti í Reykjavík open, en þar sem það voru utanbæjarlið í úrslitaleiknum þá urðum við Rvk.meistarar:o) Spiluðum svo við FH í dag um 3.-4.sæti, ég var í hópnum, og fékk meirsegja að spila ábyggilega um 30 mín. og náði að troða inn einu marki:o) Þarf samt að ná að spila mig aðeins betur til, komast í takt við nútíma handbolta!! Hann er orðinn töluvert hraðari heldur en þegar ég spilaði fyrir 6 árum síðan! Hehe tala eins og gömul kempa;oþ
Jæja gotta go, er að fara í ammæliveislu til Önnu pönnu:o) Til hamingju með afmælið sæta mín;o* Og Sindri frændi á líka afmæli í dag, var einmitt að koma úr veislunni í Grindó. Og múttus átti afmæli í fyrradag, nóg að gera í þessu afmælistússi..!
Later...
3 ummæli:
Litli RVK meistarinn!! Til hamingju :)
Þú veist samt greinilega ekkert um mig ;)
Takk fyrir síðast vinan !!! það var hörkustuð ;)
Já Fannar, ég er öööömurleg vinkona:-/ Það voru samt 2 svör sem ég vissi en ´svaraði vitlaust í hugsunarleysi!!
Takk sömuleiðis Anna mín, verðum að gera þetta aftur soemday;oþ
Skrifa ummæli