
Jeeei þetta gekk upp með íbúðina og ég flyt inn um/eftir mán.mótin, fer reyndar út 30.ágúst, væri ágætt að vera búin að koma sér aðeins fyrir en það eru svo sem ekki hundrað í hættunni þó það verði ekki fyrr en ég kem heim, en vá hvað ég er ánægð, litli einhverfupúkinn (sjá mynd) fær eigið hýði:o)
Mágur minn gerði veðmál við mig, hann veðjaði að ég verði hætt í handbolta vegna meiðsla fyrir 1.okt. Það er ágætt challenge til að halda sér heilum;o) Byrjar reyndar ekki gæfulega, þar sem stirðleikinn sem ég fann í framanverðu lærinu er sem sagt tognun! Fékk staðfestingu á því þegar ég reyndi að sýna einum kúnnanum mín framstig! Mjög ekki töff:-/ En það er bara hitakrem og bíta á jaxlinn, mar fer ekki að hætta fyrr en í fyrsta lagi ef mar slítur eitthvað! ;oþ
Jæja nenniggi meira, later...
5 ummæli:
Til hamingju með íbúðina! Geggjað:)
Til hamingju með íbúðina !!!!
Ef það kemur EINN ANNAR köttur á síðuna, EINN enn krúttlegur lítill ógeðslegur köttur þá læt ég LOKA síðunni Bjarney! Og núna er ég ekkert að grínast! Það gerði útslagið þegar ég fór í Sporthúsið í morgun og það voru 4 kettir að liggja ofan á hvorum öðrum á wallpaperinu!
EINN KÖTTUR Í VIÐBÓT! EINN!!!
Takk Dóra og Haffi:o)
En Egill minn, má ég þá setja hvolpa í staðinn?? :o)
Nei
Skrifa ummæli