laugardagur, ágúst 05, 2006

Nú er þráðurinn hjá mér gagnvart mótmælendunum á Kárahnjúkum orðinn ansi stuttur! Farnir að hlekkja sig við vinnuvélar og stöðva vinnu, ráðast á lögreglumenn og saka þá svo um ofbeldi, eðlilegt lið! Ef þau halda að allir landsmenn séu sammála þeim varðandi virkjunina, af hverju bjóða þau sig ekki fram til þings og hafa raunveruleg áhrif??
Það fauk þvílíkt í mig um daginn þegar ég vissi af einni sem er að mótmæla, og var ein af þeim sem sletti skyrinu á Noedica hérna um árið, og ég veit það fyrir víst að þessi manneskja nennir ekki að vinna því henni finnst svo þægilegt að vera á atvinnuleysisbótum! Svo var einn tekinn með kannabisefni þarna uppfrá! Það eina sem ég segi er bara, fáið ykkur vinnu aumingjarnir ykkar, hættið að eyða peningum skattborgara í eitthvað rugl, þið eruð löngu búin að missa allan trúverðugleika!!

Vil samt taka það fram að ég hef enga sérstaka skoðuna á virkjuninni, hef ekki kynnt mér málið nægilega vel. Mér finnst þetta mótmælendapakk bara vera að fara kolvitlausar leiðir að því að fá sínu framgengt. Algjörlega burtséð frá því hverju er verið að mótmæla...

Hehe, góð byrjun á deginum að koma með reiðipistil, en ég var bara að enda við að lesa blöðin og þar voru fréttir um þetta. Gæti líka komið með pistil um hversu mikið fíbbl Bush sé, styður Ísraelsmenn á meðan þeir eru að drepa saklausa borgara í Líbanon, og kúga Palestínsku þjóðina. En ég skal geyma það til betri tíma;o) Mig hefur í mörg ár langað til að fara út sem sjálfboðaliði á svona stríðshrjáð svæði, svo að maður geti virkilega lagt e-ð af mörkunum í staðinn fyrir að sitja bara í þægindum og tuða um hvað þetta sé ömurlegt. En það sorglega er að ég hef ekki efni á því að fara út sem sjálfboðaliði:-/ Það kostar hellings pening, og svo er ég með smá skuldir á bakinu sem ég gæti ekki bara hlaupið frá:o( Ég var að spá í að tala við einhvern af nýju millunum hérna á Íslandi, og koma með nýstárlega hugmynd, þ.e að í staðinn fyrir að gefa pening út þá myndu þeir borga skuldirnar mínar (sem eru reyndar alls ekki miklar) og dóneita bara manneskju í hjálparstörf (sem væri þá ég í þessu tilviki;o)) Jebb mér finnst þetta bara ansi góð hugmynd;oþ Þannig að ef þú ert milli og lest þetta, ertu þá til í að hugsa allavegna um þetta? ;o)

Að öðru, ætlaði á æfingu í morgun, en fór soldið seint að sofa (á minn mælikvarða) eða rúmlega 1, og vaknaði ekki fyrr en rétt fyrir 10. Þar sem ég og Habban erum að fara á æfingu og í baðstofuna rétt eftir hádegi þá ákvað ég bara að slaka á og fá mér cocoa puffs:oD Held það séu mörg ár síðan ég fékk mér cocoa puffs! Var búin að gleyma hvað ég rispast mikið í gómnum af því:-/ Fyndnar samt auglýsingarnar þeirra, járn-og vítamínbætt, verið að gefa það í skyn að Cocoa puffs sé hollt!! Hehe, ætli einhver falli fyrir því??

Jæja nóg af tuði í bili, later...

3 ummæli:

skuladottir sagði...

Vá hvað ég er sammála þér með þetta Kárahnjúkahyski.. Kveikja í þessu pakki..

bjarneybje sagði...

Hahaha, þú hefur nottla aldrei verið þekkt fyrir að vera með róttækar skoðanir!! Hehe þúrt algjör snillingur! ;o)

Nafnlaus sagði...

óþolandi iðjuleysingjar. Ætti að senda þeim reikninginn fyrir löggæslunni þarna.