laugardagur, ágúst 19, 2006

1:06:01 (1:02:36) Bjarney Bjarnadóttir 1979 IS109

Þetta er staðfesti tíminn minn, fyrst er tíminn sem ég kom í mark á en í sviganum er tíminn minn. Ég veit ég ætlaði bara að vera með o.s.frv mér finnst sökka að ég er ca. 100 sætum neðar en manneskjur með "minn" tíma, af því að ég komst svo seint yfir ráslínu í byrjun (af því að það voru um 2000 manns í þessu hlaupi) það er nokkuð ljóst að ég mun TROÐA mér fremst á næsta ári! Skil alveg að þeir þurfi að hafa þetta svona þegar veit á verðlaun fyrir efstu 3, en þegar lokaniðurstaða er komin þá finnst mér að maður eigi að fá sinn tíma metin. Æi ég er kannski bara heavy bitur, stundum er kannski ekkert gott að vera keppnis:o( Allt í lagi, massa þetta næst;oþ Væri samt stundum ágætt að geta BARA verið með! En ég veit svo sem MINN tíma, hitt eru bara asnalegar tölur!!! ;o)

Jæja farin aftur, varð bara að koma bitrinu frá mér!! Thanks for listening;o)

Engin ummæli: