
Fór í skólann í morgun, ég held að þetta verði fu&%ing brilliant gaman:oD Líst allavegna rosa vel á þetta so far! Fórum í boltatest, blak, körfu, fót- og handbolta. Ég var heavy stressuð fyrir fótboltatestið, veit ekki hvað kom yfir mig:-/ En þetta gekk allt saman alveg ágætlega, fórum svo í fimleika- og hlaupatest, sem gengur hvorutveggja mjög vel, en ég fékk svo að sleppa sundinu útaf leiknum í kvöld, sem ég spilaði svo hvort sem er ekkert, en samt ágætt að losna við niðurlæginguna í sundinu!! Annað sem ég gerði í dag var:
- Borðaði 2 og 1/2 banana (ekki alla í einu samt , vantaði bara inní ímyndunaraflið fleiri matartegundir og nestishugmyndir!)
- Veiddi geitung í glas, mamma eitraði fyrir honum og ég fékk heavy samviskubit þegar ég sá hann engjast um áður en hann dó:-/
- áttaði mig á því að það er bara vika í að ég verði komin til Benidorm:o)
- Tók að mér 2 vaktir á sambýlinu um helgina
öh og ekkert meir sem ég man, kem þá bara með öppdeit síðar;o)
Hey jú man, það var hringt í mig frá einhverri heilsuakademíu í morgun og ég var beðin um að sjá um Lífstílsnámskeið og/eða herþjálfun. Fannst það alveg spennandi en sagði eins og er að ég þori ekki að taka eitthvað að mér sem ég er ekki viss um að geta staðið við:-/ Það var einmitt líka hringt í mig frá Orkuverinu í vetur/vor og ég beðin um að vera með svona lokuð námskeið og spinningtíma. Fyndið að nafn mitt skuli bera á góma hjá einhverjum stöðvum útí bæ! Svona kom það einmitt líka til að ég kenndi spinning í Veggsport eitt sumarið, var bara hringt í mig uppúr þurru, af því að ein kona var á ættarmóti með mér og heyrði einhvers staðar að ég hefði verið að kenna spinning og e-ð, þannig að þau grófu upp númerið, og ég beðin um að kenna:o) Gaman að því, vona bara að kúnnarnir mínir og stöðvarnar séu tilbúin að bíða eftir mér og taka við mér aftur að loknu námi..! ;oþ
Later peepz...
1 ummæli:
Áfram HK! ;)
Skrifa ummæli