
Fullt af tilgangslausum fróðleik hér, varð nú samt að kommenta á nokkur dæmi, það er í alvörunni fáránlegt að þetta sé yfir höfuð vitað! Ætli peningar skattborgara fari í þessar rannsóknir?? En ég hef allavegna alltaf gaman að svona, vona að þið hafið það líka;o)
Það er ekki hægt að sleikja á sér olnbogann
Krókódíll getur ekki stungið út úr sér tungunni
Hjarta rækju er í hausnum á henni
Í rannsókn á 200.000 strútum í yfir 80 ár hefur ekki einn stungið hausnum í sand
Svín geta ekki horft til himins
Minni gullfiska er um það bil þrjár sekúndur (svipað og ég :o))
Rúmlega helmingur fólks í heiminum hefur hvorki hringt né svarað í síma
Rottur og hestar geta ekki ælt (var gerð sérstök rannsókn til að finna það út?)
Rottur fjölga sér svo hratt að eftir 18 mánuði geta tvær rottur átt milljón afkomendur
Súperman kemur fyrir í hverjum einasta sjónvarpsþætti af Seinfeld
Kveikjari var fundinn upp á undan eldspýtum
35% þeirra sem auglýsa í einkamáladálkum eru þegar giftir
"Kvak" anda bergmálar ekki og enginn veit afhverju
23% bilana í ljósritunarvélum stafa af því að fólk hefur reynt að ljósrita á sér óæðri endann
Að flestir varalitir innihalda fiskihreistur
Allir hafa persónugreinanleg tunguför eins og fingraför
Rúmlega 75% allra þeirra sem lesa þetta munu reyna að sleikja á sér olnbogann
Sterkasti vöðvinn í líkamanum er tungan
Stelpur blikka tvisvar sinnum oftar en strákar
Algengasta nafnið í heiminum er Mohammed
Kakkalakki getur lifað í 9 daga .... án þess að hafa haus (hver er þá tilgangur lífsins?)
Ef kolkrabbi er nógu svangur getur hann borðað 1 af örmum sínum
Svört ekkja, sem að borðar kallana sína eftir mökun, getur borðað allt að 25 kalla á dag (og svo er ég kölluð tík!!)
Venjulegt rúm er heimili fyrir u.þ.b. 6 milljarða rykmaura
Býflugur "hita upp" áður en að þær fljúga
Andrés Önd er bannaður í Finnlandi vegna þess að hann er ekki í buxum (ég hef nú samt aldrei séð önd í buxum!)
Ef að þú gerir strik með krít hliðina á maur fer hann ekki yfir það
Það er líklegra að þú deyjir vegna fljúgandi kampavínstappa en banvænni könguló
Það er líklegra að þú deyjir fyrir sök asna (dýrsins sko) enn í flugvél
Venjuleg kona talar u.þ.b. 7000 orð á dag, en venjulegur maður aðeins 2000
Belgar reyndu einu sinni að dreifa pósti sínum með köttum (það virkaði ekki)
Það er ekki hægt (í alvörunni) að hnerra með augun opin
Maður getur rifbeinsbrotnað við að hnerra harkalega
Augun stækka ekkert frá fæðingu
Walt Disney var hræddur við mýs
Ef heyrnatól er notað í eina klukkustund eykst bakterífjöldiní eyrunum verulega og getur orðið 700 meiri en venjulega
Fullnæging svína stendur í 30 mínútur (nú skiljiði fyrirsögnina! ;oþ)
Ef þú lemur hausnum við vegg brennir þú 150 hitaeiningum á klukkutíma (hver fann það út? ekki mjög mannúðleg rannsókn!)
Menn, höfrungar og einhver tegund af simpönsum eru einu tegundirnar sem stunda kynlíf sér til skemmtunar (ef svín stunda það ekki til skemmtunar, þá sé ég ekkert réttlæti í því að þau fái hálftíma fullnægingu!!)
Rétthent fólk lifir að meðaltali 9 árum lengur en örvhentir (jæja, get þá loksins hætt að svekkja mig á því að vera ekki örvhent:o))
Maurar geta lyft 50 faldri þyngd sinni, togað 30 falda þyngd sína og þeir falla alltaf á hægri hliðina þegar þeir verða drukknir (fær fólk borgað fyrir að gera þessar rannsóknir??)
Ísbirnir eru örvhentir
Leirgedda (það er fiskur) er með 27,000 bragðkirtla (humm, ábyggilega ekki gott að finna svona mikið bragð ef mar er LEIRgedda!)
Flóin getur stokkið 350 falda lengd sína, það svipað og maðurinn stökkvi yfir fótboltavöll (svipað og ég, sennilega þessvegna sem Kalli þjálfari sagði að ég stykki eins og fló ;oþ eða sagði hanm flón? Þarf að spyrja hann útí þetta!!)
Sum ljón eðla sig 50 sinnum á dag (og ekkert af því til skemmtunar? Eitthvað á ég nú erfitt með að trúa því!!)
Fiðrildi eru með bragðlaukana á fótunum
Augu strútsins er stærra en heilinn
Stjörnufiskar hafa engan heila
9 ummæli:
Some people have entirely too much free time on their hands :)
já ég viðurkenni það Fannar, ég hef alltof mikinn frítíma! :-/
Hey Hilmar, sannaðu það!! neinei ég trúi þér alveg, það er alltaf til fólk sem er abnormal;oþ
Já geta svín ekki horft til himins segirðu? Horfi ég á animal planet í þrjá tíma á dag eða þú!
http://www.fotosearch.com/comp/DGT_single/DGT047/12724853.jpg
Númerið hjá Papco er 5877788. Hringdu og biddu um Einar lagerstjóra, ef hann er ekki við þá ætti Bæring að geta skeint þér.
Heyrðu það er ekki eins og ég hafi búið þennan lista til!! Held ég sjái sko bara sjálf um að skeina mér..! ;oþ
P.s þó þetta svín sé að horfa í áttina upp, þá er ekkert víst að sjái nokkurn skapaðann hlut!! sjá ábyggilega bara svona ská upp,en ekki beint upp! huh! ;oþ
Þú ert alveg fín pía sko :)
Stjörnufiskur? Er það sama og krossfiskur (starfish á ensku!:))
ábyggilega, eins og ég sagði þá setti æeg ekki saman þennan lista og ber því enga ábyrgð á þeim villum sem þar kunna að vera!! ;oþ
Snilld! ég skemmti mér konunglega við að lesa þetta:) nörd? nei, held ekki sko;)
Skrifa ummæli