föstudagur, ágúst 25, 2006

Mjög eðlilegt að vera BUSAÐUR 27 ára!!

Iss ég var sökuð um vanrækslu fyrst ég var ekki búin að blogga í einn dag eða eitthvað! Hérna kemur þá færsla Thelma!! ;oþ

Það var busadagur í skólanum í gær, mjög eðlilegt að vera 27 ára busi!! Við byrjuðum á að fara út að hlaupa (vúhú) það var reyndar pínu fyndið því "hérarnir" sem stjórnuðu hlaupinu létu okkur m.a fara inní samkaup og hlaupa hring í búðinni og svo var hlaupið inn og út af KFC, og uppá hringtorg að gera einhverjar æfingar. Þetta var alveg fyndið, nema að hlaupið var soldið langt og nokkrir alveg búnir á því eftir það. En "fjörið" var bara rétt að byrja!! Þegar við komum tilbaka þá voru kókosbollur og kók, já ekki í boði, heldur skylda! Sem betur fer var Arnar við hliðina á mér og dró mig í land eftir að ég tók 2 bita af kókosbollunni minni, og svo afþakkaði ég kókið, þetta var sko venjulegt kók, mesti óbjóður í heimi! Bjakk...

Kókosbollan og kókið höfðu samt tilgang sko, hann var að láta okkur æla í þrekinu sem kom á eftir!! Mjög eðlilegt, við fórum inní íþróttaslinn í HERÞJÁLFUN sem Egill stjórnaði, og hann tilkynnti mér að nokkrar æfingar væru ekki þarna nema af því að ég er til! (Notaði sem sagt æfingar sem ég hafði pínt fólkið okkar með!!) þetta var samt algjör dauði sko, og gott ef að það örlaði ekki á pínu pirringi hjá mér:-/ Gribbaðist t.d á einhverja eldri árs nema að drulla sér frá þegar við áttum að taka framstig yfir og tilbaka yfir langan íþróttasal (eftir spretti og froskahopp) en þeim var nær að planta sér þarna fyrir! ;oþ

Eftir þessa 1 og 1/2 þrekæfingu var farið með okkur útá slökkvistöð, við bundin saman inní kaðal og slökkvikallarnir smúluðu á okkur! Við urðum sko gegnsósa!!! Svo var grillað pulsur oní okkur á eftir. Þetta hefði verið gaman ef það hefði ekki GLEYMST að segja okkur að það væri ráðlegt að taka með föt til skiptanna!! Ég fékk sem betur fer lánuð föt af Agli, en ég var samt ekkert gerðveikt töff í ALLTOF stórum fötum, og skóm nr.50! (ca.)

Og svo var bjórkvöld á Kaffi cultura í gærkvöldi og haldiði að kellan hafi ekki bara skellt sér! Já nú detta sennilega einhverjar lifandi flær af hausum ykkar lesenda, en þið lásuð rétt, ég stundaði félagslíf!! ;oþ Hefði nú samt sennilega ekki farið ein sko, og var næstum því hætt við, en Egill skammaði mig og sagði að ég væri orðin algjör AMMA! Þannig að ég varð að sýna smá lit,og sann að ég væri fædd '79 en ekki '59 eins og Gillz vildi meina:-/ En svo var bara voða gaman:o)

Þetta slökkviliðs-stunt gerði það samt að verkum að ég þurfti að fara heim úr vinnunnni í morgun, komin með blöðrubólgu! Sem er alveg óþolandi helvíti, heavy óþægilegt:-/ Svo ætlaði ég að reyna að þrauka vinnuna og athugaði hvort einhver ætti verkjatöflu í húsinu, en það var ekki til. Það var strákur að æfa, svona ofurmassi, og ég spurði hvort hann ætti verkjatöflu, hvort hann væri ekki alltaf með heilt apótek á sér;oþ Hann sagðist skyldi athuga þegar hann færi inní klefa. Svona 20 mín. síðar kemur inní sal með íbúfen í Lyfju poka, og sagði að ég mætti bara eiga þær. Ég sagði honum að ég þyrfti bara 1 töflu, þá sagðist hann aldrei nota íbúfen. Ég spurði þá til hvers hann ætti þær til. Þá hafði hann ekkert átt þær til, heldur fór útí apótek til að kaupa handa mér verkjatöflur!! Mig langaði helst að fara að tárast eða eitthvað þetta var svo fallega gert af honum (ég gerði það nottla ekki, naglar tárast ekki! ;oþ) en já, þetta var algjör óþarfi hjá honum, en ég kunni líka þeim mun meira að meta þetta! Fór sv heim korteri síðar, útí apótek og keypti trönuberjatöflur og trópí og lagðist uppí rúm. Er að skána, en ætlaði að tala við lækni á heilsugæslunni og biðja hann um pensilín til að drepa þetta, en þá er það ekki hægt. Skiljanlega, það má nottla ekki taka séns á pensilínmisnotkun!! En ég ætla að athuga hvort trönuberjatöflurnar og vatnsdrykkja lagi þetta ekki bara...

Vó löng færsla, er hætt. Later...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert algjör nagli, litla hetjan mín :)

Mundu bara að þú verður að borga fyrir þig, ná þér niður á Agli með einhverju kvikyndislegu ;)