laugardagur, ágúst 19, 2006

Jæja þá er Reykjavíkumaraþonið mitt búið, og ég kom sjálfri mér verulega á óvart:o) Hljóp 10 kílómetrana á 62-3 mínútum (á eftir að sjá staðfestan tíma) en átti alveg nóg inni eftir hlaupið, súrnaði soldið því ég tók ansi massívan endasprett en hafði nú samt orku til að skokka yfir á Eggertsgötuna eftir hlaupið:o) Hljóp á mjög þægilegum hraða fyrstu 5-6 km (snilld að vera með púlsmæli, maður hleypur mikið skynsamlegar) fann þá að ég átti nóg inni og byrjaði aðeins að auka og hljóp svo bara nokkuð hratt síðasta km. Byrjaði eiginlega með þeim öftustu, held það hafi verið 2200 manns skráðir í 10 km, en það var samt ágætt að byrja svona aftarlega af því að þá tók ég framúr svo mörgum, en enginn tók fram úr mér! ;oþ Og svo er maður með svona tímatökuflögu á skónnum sínum þannig að maður fær snn persónulega tíma, en miðað við rástímann þá var ég notla ekki með góðan tíma, var 3 mín. bara að komast útúr hliðinu eftir að hlaupinu var startað! En þetta var gaman, og kannski er ég ekkert í jafn lélegu formi og ég er alltaf að halda fram:-/ Passaði mig líka á að hlaða vel kolvetni fyrir hlaupið, þarf að fara að gera það skipulegar fyrir handboltaæf...

Jæja, ætla að fá mér að borða og ætla svo að skella mér á æf með Höbbu Kriss, ætla að lyfta pínu og teygja vel! Held það veiti ekki af eftir þetta hlaup, skell mér svo jafnvel í laugarnar í heitan pott og reyna slaka aðeins á, dagurinn gæti ekki orðið mikið betri:o) Ætla svo á landsleikinn ísland-Tékkland hjá kvennalandsliðinu, sýna smá stuðning;o) Hann er kl.16 og frítt inn, þannig að mér finnst að sem flestir ættu að koma á Laugardalsvöllinn og hvetja, fáið meirsegja ábyggilega að sitja í nýju stúkunni og allt! ;o)

Farin...

2 ummæli:

fiapia sagði...

Hei fyndið, Birna vinkona var líka 63 mín hehe... Þið bara samtaka í þessu :)

bjarneybje sagði...

heheh jamm, en ég kom nottla seinna í mark útaf þessum ljóta rástíma!! ;oþ hehe